Það er svo margt................

Sem ég skil ekki, eitt er að það skuli þjóna tilgangi að taka íbúðir af fólki, því að í dag eru einu kaupendurnir þeir sem eru með svarta peninga og eða hagnað af bólupeningum sem sagt það eru sömu græðgismennirnir enn á ferð eins er með bílana sem er verið að taka af fólki og svo er fólk áfram í skuld við bankana en núna með eingin veð, fjögurra milljóna króna bíll er seldur "vini" nú eða bara hvaða presti sem er á milljón og fólkið skuldar áfram  þrjár millur.

Á sama tíma og lánið hækkar á bílnum hjá mér fellur hann í verði og veðið orðið að litlu sem engu en á honum hvílir lán sem er langt fyrir ofan það sem ég skrifaði upp á og er allt í einu gengistengt.

Og við það að verð á hinum ýmsu vörum hækka bæði fyrir sakir heimskrar ríkisstjórnar og gráðugra kaupmanna þá hækkar greiðslubyrði mín af íbúðarláninu.

Og ég skil heldur ekki hvernig stendur á því að Helgi Seljan getur séð það út að allt í lagi sé að hækka skatta á tóbaki, víni og eldsneyti vegna þess að þessir flokkar höfðu orðið eftir, ég sé ekki betur en laun flestra landsmanna hafi líka orðið eftir og ekki stekkur féalgsmálaráðherra Fram og hækkar launin okkar sí svona, hvað þá að sá asni sé nú að reyna að vinna í félagsmálum ílskan í þjóðfélaginu vex daglega á meðan téður ráðherra bíður eftir að komast í ESB eins og hann saggði í ræðustóli Alþingis nú fyrir helgi, en í Evrópu vex atvinnuleysið og vonleysið líka daglega svo ég sé ekki að reiðin hér minnki við það.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heill og sæll; fóstri góður !

Rétt mælir þú; sem oftsinnis áður. Helgi Seljan ? Jah,..... í bezta falli, meðvitundarlaus, um hagi og háttu samlanda sinna, eða þá, svo heila þveginn, af stagli yfirboðara sinna, að ekki sé mögulegt, að gera meiri kröfur til hans, um lágmarks raunsæi.

Félagsmála ráðherrann; Árni Páll, gengur fyrir ESB eiturlyfjum sínum, sem öllum er kunnugt - verði lát á lyfjagjöf, kynni hann að ákalla Comecon, gamla efnahagsbandalag Austur- Evrópuríkjanna, á Sovét tímanum, hvar þessi spjátrungur trúir á álfuna , sem einhverja allsherjar lausn verldar vandans - þó svo; Evrópa sé, smá skiki út úr hinni voldugu Asíu, sem kunnugt er.

Með beztu kveðjum; að hálendismörkum - sem jafnan /

Óskar Helgi Helgason   

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 31.5.2009 kl. 16:33

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Skil þetta ekki frekar en þú.  Þetta er hundleiðinlegt allt saman.

Ásdís Sigurðardóttir, 1.6.2009 kl. 00:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Högni Jóhann Sigurjónsson
Högni Jóhann Sigurjónsson
Ég segi bara eins og mér finnst, en áskil mér rétt til að skipta um skoðun þegar mér lærist það. hjs@simnet.is
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 12
  • Frá upphafi: 82195

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband