Ólíðandi ástand.

Ég horfði einmitt uppá lögreglubílana hér í Rangárvallasýslu fyrir helgina þar sem þeir voru einmenntir og stuttu síðar sá ég annan þeirra í forgangsakstri, þetta er bæði óþolandi vinnu umhverfi lögreglumanna og ólíðandi þjónustugeta.

Enn ég velti nú samt fyrir mér hvort að ökunýðingur sá sem myndin hér með þessari frétt bendir á hefði stoppað fyrr hefðu tíu bílar elt hann og jafnvel fjögur hjól, mér finnst nú eins og menn hafi mist sig í lögguleik að 6 bílar skuli elta hann og svo tvö hjól í viðbót, þanneiginn að í mínum huga vantar nú eitthvað uppá skipulag líka, sem svo aftur ræðst auðvitað að einhverju leiti af peningum eða öllu heldur peningaleysi. Hvað ætli margir hefðu elt hefðu verið nógir peningar?


mbl.is Bágborin staða lögreglunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Líklegast hefðu nú fjórir bílar og tvö hjól verið eftir í Reykjavík til að sinna öðrum verkefnum. Það sem kemur fram í fréttinni er það að á meðan eltingaleiknum stóð var lögreglan lömuð ef komið hefðu upp önnur mál.

Ármann (IP-tala skráð) 21.7.2009 kl. 17:36

2 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Ókey er það skammturinn 6 bílar og 2 hjól ef að einhver vill ekki stoppa? Ef þeim hefði ekki tekist að stoppa hann þarna og hann komist yfir Holtavörðuheiði hefðu þá lögreglubílar frá Akranesi, Borgarnesi og Hólmavík bæst í lestina og svo af Hvamstanga og koll af kolli?

Högni Jóhann Sigurjónsson, 21.7.2009 kl. 18:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Högni Jóhann Sigurjónsson
Högni Jóhann Sigurjónsson
Ég segi bara eins og mér finnst, en áskil mér rétt til að skipta um skoðun þegar mér lærist það. hjs@simnet.is
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.4.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 7
  • Frá upphafi: 82190

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 7
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband