Mér fannst félagsmálaráðherra, heilbrigðisráðherra og fjármálaráðherra síðustu ríkisstjórnar standa sig afar ílla varðandi öryrkja, ellilífeyrisþega og annara bótaþega yfirleitt og er heldur ekki að skilja þau sem eru í þessum embættum í dag.
Ég hefði tekið Keflavíkurflugvallarsvæðið undir ÞESSA þjóðfélagshópa það er svo ótal margt sem mælir með því.
Í fyrsta lagi: Svæðið er vel girt og með hliðum með aðstöðu fyrir verði.
Í öðru lagi: Þar eru íbúðir svo margar að ef að við setjum, eins og eðlilegt þykir, tvo til þrjá einstaklinga í herbergi þá er hægt að tæma öll elliheimili landsins og öll langlegupláss spítalanna.
Í þriðja lagi: þá er þetta frísvæði og þannig hægt að hafa allt starfsfólkið óskráð og þá á nánasartaxtanum án nokkura afskipta verkalýðsfélaga.
Í fjórða lagi: þá er ekki 220v rafmagn til að nota tölvur og sjónvarp og þannig þarf ekki að greiða nein afnotagjöld niður.
Í fimmta lagi: Þá er nóg að hafa einn síma miðsvæðis þannig er bæði hægt að koma í veg fyrir niðurgreidd afnotagjöld og misnotkun á símaleiðum eins og að panta lyf sem er svo aftur leið til að koma í veg fyrir að þurfa að niðugreiða þau.
Í sjötta lagi: Þá er þarna er smíðaverkstæði og þannig hægt að láta notendur sjálfa smíða kistuna.
Í sjöunda lagi: Þá þarf ÞETTA fólk ekki að eiga bíl sem leiðir svo aftur til þess að niðurgreiðslur til þeirra í formi bílastyrkja og bensínstyrkja falla alveg niður.
Í áttunda lagi: Með allt liðið á sama stað þarf ekki nema einn svona bíl fyrir ÞETTA fólk æi hvað eru þessir bílar aftur kallaðir, fatlaðravagnar eða eitthvað svoleiðis.
Í níunda lagi: Þarna er sjúkrahús svo að vegna stöðu staðarinns er nebblega líka hægt að hafa óskráða lækna á hálfum taxta, enn þeim þætti hann sver.
Í tíunda lagi: Þá væri ÞETTA fólk ekkert að bögga mig í umferðinni, í biðröðum á t.d. læknastofum og í verslunum og ekki síst í fjölmiðlum sívælandi yfir því hvað það hefur það skítt, það er bara nóg annað skemmtilegra á að horfa í sjónvarpinu eins og t.d. blóð í útlöndum og efnhagsmálin, bara eitt dæmi um truflun: snemma í vor já eða eiginlega seint í vetur fékk ég pata af því að Pjetur nágranni minn væri kominn á nýjann bíl og eitthvað var smiður að vinna hjá honum og óttaðist ég að hann væri að láta skipta um útihurð í ofanálag, ég hef nebblega verið með þá flottustu í götunni ennþá, svo ég læddist til að kíkja, koma þá ekki hjónin á 14 og fara að spjalla og hvert var svo málefnið jú hvað lyf væru dýr og hvað lífeyrisþegar hefðu það skítt og þar með fór njósnaferð mín í súginn, hvað kom mér þessi andskotans væll við.
Svo kæru ráðherrar þið hljótið að sjá hve gríðarlega mikilvægt þetta svæði er, bara núna til dæmis er eitt dæmi í gangi það er múgæsing í gangi útaf einhverri kjeddlingu sem var að væla yfir hvað hún ætti bágt eitthvað krabbi eða eitthvað í lungum, ég meina hún á auðvitað lausaleikskrakka og er eins og fífl að reyna að kaupa íbúð, sko ef þetta svæði hefði verið notað skynsamlega þá hefði hún alls ekki getað komið því á framfæri við lýðinn, þið hljótið að sjá hvað þessi múgæsingur á eftir að kosta.
Svo kommonn Jóka, Gulli og Árni geriði nú eitthvað íussu.
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
loathor
-
axelthor
-
baldvinj
-
kaffi
-
virtualdori
-
folkerfifl
-
gebbo
-
neytendatalsmadur
-
stjornarskrain
-
gudni-is
-
sannleikur
-
zumann
-
gunnarggg
-
tudarinn
-
hallgrimurg
-
helena
-
810
-
ringarinn
-
ingabesta
-
jonaa
-
fiski
-
nonniblogg
-
jonvalurjensson
-
kolbrunb
-
ksh
-
krist
-
lindagisla
-
wonderwoman
-
altice
-
korntop
-
noosus
-
magnusthor
-
martasmarta
-
svarthamar
-
framtid
-
sigurdursig
-
siggisig
-
stjornlagathing
-
lehamzdr
-
svanurkari
-
svavarthai
-
tryggvigunnarhansen
-
valdimarjohannesson
-
vincentvega
-
sailor
-
olllifsinsgaedi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (20.4.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.