30.3.2009 | 10:18
Hvað ef.................
Ef að hagkerfi okkar væri t.d. brú, ath. hagkerfið er manngert þ.e. þetta er kapitalist mannvirki og brúin mundi gjörsamlega hrynja þá mundum við ekki ENDURREISA brúna, við mundum ganga frá ruslinu til urðunnar og byggja nýja brú.
Þegar brú skal byggð: Við notum tækifærið og endurskoðum brúarstæðið með hliðsjón af aðgengi að henni báðu megin og ef þarf og það telst skynsamlegt, færum við brúna og við endurskoðum þörfina þ.e. hverjir nota brúna og hvernig svo við byggjum hana samkvæmt því og við notum allt það nýjasta og besta sem gerir okkur kleyft að byggja brúna ódýra en samt vel örugga og með tilliti til þess að hún hennti okkur um ókomna framtíð eða svo langt sem við sjáum.
Hagkerfið okkar hrundi og er ónýtt, hendum því og byggjum nýtt og notum tækifærið og byggjum upp nýtt þjóðfélag.
Það hefur aldrei verið eins gott tækifæri og nú til að breyta úr græðgisvæðingu og tillitsleysi yfir í mannvænt þjóðfélag og við getum það, við erum fámennt eyríki, við höfum okkar eigið hagkerfi og ráðum yfir því og okkur sjálf, við eigum gríðarleg verðmæti þar sem vatnið er, orkan, sjávarútvegurinn, landbúnaðurinn og mannauðurinn með mikkla þekkingu og mikinn vilja að vopni.
Færsluflokkar
Bloggvinir
- loathor
- axelthor
- baldvinj
- kaffi
- virtualdori
- folkerfifl
- gebbo
- neytendatalsmadur
- stjornarskrain
- gudni-is
- sannleikur
- zumann
- gunnarggg
- tudarinn
- hallgrimurg
- helena
- 810
- ringarinn
- ingabesta
- jonaa
- fiski
- nonniblogg
- jonvalurjensson
- kolbrunb
- ksh
- krist
- lindagisla
- wonderwoman
- altice
- korntop
- noosus
- magnusthor
- martasmarta
- svarthamar
- framtid
- sigurdursig
- siggisig
- stjornlagathing
- lehamzdr
- svanurkari
- svavarthai
- tryggvigunnarhansen
- valdimarjohannesson
- vincentvega
- sailor
- olllifsinsgaedi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Heill og sæll; Högni, æfinlega !
Þakka þér; ágæta frásögu, en,......... í vafa fer ég að verða, með mögulegan mannauð, eins og háttar, nú um stundir.
Ekki alveg; að gera sig, ofurtrú margra, á þeim Steingrími og Jóhönnu, hver frekar, hafa komið sér hjá verkum - en að taka á, af einurð.
Tókum oft; góðar tarnir, strákarnir í frystitækjunum, hér í gamla daga, en fengum góðar pásur, inn á milli.
Sé ekki fyrir mér; að þau Jóhanna, séu neinar afburða skorpu mannaeskjur, svo sem - það er verkurinn, Högni minn.
Með beztu kveðjum; að hálendismörkum /
Óskar Helgi Helgason
Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 30.3.2009 kl. 20:27
Sæll Óskar Helgi
Ég er viss um að við eigum hér mikinn mannauð, en hann þarf að fara að virkja á annan hátt en að agnúast hvert út í annað.
Ég er á þeirri skoðun að Steingrímur Joð haldi að hann sé að gera eitthvað en að Jóhanna sé aftur á móti að draga lappirnar af ásetningi.
Að pólitíkusar geti ekki einu sinni, í slíku ástandi sem nú er, staðið saman og unnið eins og fólk er með ólíkindum, ISG gat ekki hugsað sér þjóðstjórn í haust er leið vegna þess að hún óttaðist að verða í skugga Sjálfstæðisflokksins.
Og að stjórnsýslan sé öll upp á kannt við allt og alla bara til þess eins að passa sitt eigið rassgat og flokka sinna og virðist þar engu skipta hverjar afleiðingar verða fyrir fólkið sem svo borgar brúsann, er með ólíkindum.
Ég óttast að fólk almennt kjósi áfram eins og pabbi gerði.
Högni Jóhann Sigurjónsson, 30.3.2009 kl. 21:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.