Stolið og birt lítið breytt.

"Miðað við hvað ég er að heyra um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis  
er það hneyksli að henni sé frestað fram í febrúar. Skýrslan er víst  
mjög svört og bakland hrunsins er mun verra en menn hafað þorað að  
ímynda sér. Stjórnmálamenn koma þar töluvert við sögu og þar á meðal  
margir sem eru núverandi þingmenn.

Það sem er hneyksli er að ríkisstjórnin hefur fengið einhverskonar  
forskoðun eða útdrátt úr skýrslunni nú þegar. Hvar stendur sjálfstæði  
og trúverðugleiki þessarar rannsóknarnefndar þegar svo er? Það er nú  
strax búið að grafa undan trúverðugleika skýrslunnar með þessari  
frestun.

Ástæðan sem verður væntanlega gefin fyrir frestun birtingu er að leyfa  
fólki að eiga friðsæla hátíð. Raunverulega ástæðan er að koma á höggi  
á pólitíska andstæðinga svo stuttu fyrir sveitarstjórnarkosningarar að  
viðkomandi flokkar eiga sér ekki viðreisnarvon. Enn og aftur er verið  
að nota harmleik hrunsins í pólitíska refskák. VG og Samfylkingin  
verða fyrir ævarandi skömm ef þau láta sér þetta eftir.

Ég vil að þið sem eruð kjósendur VG og S komið þeim skilaboðum  
á framfæri að þetta sé algjörlega óþolandi íhlutun í upplýsingu mála.  
Við eigum að fá skýrsluna strax upp á borðið og útkljá innihald hennar  
í samfélaginu án truflana frá valdasjúkum stjórnmálamönnum. Ég segi  
fyrir mig að ég hef engan áhuga á að fara í gegn um hátíðarnar með  
þetta hangandi yfir.

Sjálfstæðisflokkurinn þykist hafa tekið til hjá sér en það var  
kattarþvottur í besta falli. Afneitun kjarna stuðningsmanna flokksins  
er algjör. Því fyrr sem sannleikurinn er leiddur í ljós því betra.  
Seta spilltra þingmanna hefur hugsanlega nú þegar valdið ómældum skaða  
fyrir þjóðina.

Með því að fresta skýrslunni eru núverandi stjórnvöld að skemma fyrir  
trúverðugleika hennar. Hvað fleira hefur verið haft áhrif á? Hefur  
eitthvað af núverandi valdagengi verið fjarlægt úr skýrslunni? Eða á  
að gefa sér tíma til þess? Svona spurningar koma upp um leið og  
stjórnvöld ílutast í framkvæmdina. Menn bara meiga ekki leyfa sér þetta.

Ég segi, skýrsluna upp á borðið eins og til var boðað í upphafi.  
Enginn stjórnmálamaður á að fá að skoða hana fyrirfram. Þetta er gert  
fyrir þjóðina en ekki valdhafa hafið það í huga. Öll íhlutun  
stjórnmálamanna í störf nefndarinnar er alvond, þeir grafa ekki bara  
undan skýrslunni, þeir grafa undan eigin trausti."

Það er kominn tími á alvöru mótmæli - ný skilti og nýjar kröfur
ein krafan gæti verið að skýrslan verði birt  í  nóvember.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Högni Jóhann Sigurjónsson
Högni Jóhann Sigurjónsson
Ég segi bara eins og mér finnst, en áskil mér rétt til að skipta um skoðun þegar mér lærist það. hjs@simnet.is
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (30.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 10
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband