Huglaus ríkisstjórn og því hættuleg þjóðinni.

Það má ekki með nokkru móti taka neina áhættu á að stiggja ESB, því fyr sem þessi ríkisstjórn fer frá því betra.

Og svo eru það hefðirnar, maður lifandi, það má ekki tala við þetta hyski nema með ákveðnum hætti af ótta við ESB báknið.


mbl.is Vill að ráðherrar ræði við Breta og Hollendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

liturinn eskan, liturinn.

Alltof margir þingmenn geta í langflestum tilfellum svarað þessari spurningu, það var liturinn eskan mín, það var bara spurt að því hver bar frumvarpið Fram, ekki hvað var í því og farðu svo út að leika þér.


mbl.is Hvað sagði amma um Icesave?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Össur,

stuðningur við Sjálfstæðismenn hefur aukist og það er ekki síst vegna Icesave málsins en það er líka aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar og skattastefna sem veldur.

Andstaða við ESB eykst og andstaða við Icesave samninginn eykst og andstaða við skattastefnuna eykst og pirringur vegna aðgerðarleysis eykst, niðurstaðan er að við erum fleiri og fleiri sem viljum ríkisstjórnina frá, Árni Páll er svo gott sem búinn að eyðileggja velferðakerfið.

Vinstri félagshyggjustjórnin er með allt niðrum sig.


mbl.is Þinginu haldið í gíslingu málþófs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við höfum lifað frostavetur áður.

Við þurfum ekki þessi lán, mjög einfalt, það liggur meira á að koma útflutningsgreinunum og atvinnulífinu yfirleitt í gang og taka á útgerðinni og vinnslunni sem geymir gjaldeyri í sverum upphæðum í útlöndum.

http://www.hjariveraldar.is/


mbl.is Frostavetur falli Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skattar

Ætli Steingrímur sé ekki bara ánæggður með þetta, af þeim vörum sem þarna er útbýtt er sjálfsagt búið að greiða virðisaukaskatt og þarna gæti hann staðsett posa þar sem það fólk sem fer um dyrnar mundi renna korti í og þanneigin væri hægt að láta þau borga skatt af þessum "hlunnindum" það er engin ástæða til að láta þau sleppa ef hægt er að láta þau borga einhverja skatta, við búum nú við vinstri velferðarstjórn.
mbl.is 430 fjölskyldur fengu aðstoð í gær
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ha ha ha ha

Steingrímur Joð gat sjálfur ekki verið á sjó, hann gat ekki verið bóndi og það sem mest er um vert að hann gat ekki einu sinni verið vörubílstjóri og í það er hægt að nota heilalausa, svo halda menn að hann geti verið fjármálaráðherra, fáráðlegt - þetta er bara fáráðlegt.

Hvað er um að vera þarna og hvar er skynsemin, er ekki nær að bjarga verðmætunum á þeim tíma sem þarf til að vel sé gert, við sem megum ekki vinna nema takmarkað á dag vegna vinnulöggjafar erum stundum kölluð til í lengri tíma eins og tildæmis eina og eina kvöldstund eða nótt vegna þess að verðmæti liggja undir skemdum en þarna liggja þau undir skemdum vegna fautaskaps óhæfrar ríkisstjórnar.


mbl.is Icesave-málið rætt fram á nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á þessu tvennu er verulegur munur

Flugmenn gæslunnar vinna fyrir laununum sínum og vel það og laun þeirra og kjör eiga aldrei að þurfa vera umræðuefni - aldrei.
mbl.is Flugmenn Gæslunnar með hærri laun en forsætisráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Síðasti séns

Nú fer hver að verða síðastur að tilkynna Jóhönnu hverjir eru með og nú mun Steingrímur Joð nota kvöldið og nóttina ef þarf til að snúa upp á hendur og eyru Lilju og Ögmundar, Guðfríður Lilja og Atli Gísla eru gungur það er komið Fram að þau eru í því að koma sér undann því að vera viðstödd atkvæðagreiðsluna hún í feðraorlof og Atli treður hausnum í sandinn.

Ég saggði þér það Atli fyrir kosningar að ykkur væri ekki treystandi og ég mundi ekki kjósa ykkur og ég er mjög ánæggður með þá ákvörðun mína en þykir ömurlegt að horfa upp á vinstri flokka ríkisstjórn setja og það ólm, þjóð sína í þá ánauð sem þið eruð að gera.


mbl.is Þingflokkur VG fundar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áfram heldur ríkisstjórnin að laumast.

Ég sé ekki betur en að það eigi að klára Icesave á mánudaginn. fyrir hádegi eru fjárlög, hádegisfundur með Icesave  og svo fundur í kvöldmatarhléi ... sem þýðir að nefndin afgreiðir það út í hádeginu, tekið til annarar umræðu um daginn og svo á að  taka það til þriðju um kvöldið og kjósa. Þrír þingmenn, þar af  tveir í stjórnarandstöðu (Birgitta og Ragnheiður Elín) eru á Nató-þingi, Björgvin G fyrir Samfó og ég frétti að Ásta Ragnheiður  ætlaði líka að vera úti. Þá eru leikar jafnir ef þau fjögur eru í  burtu. Lilja Mós og Ögmundur skiluðu séráliti í efnahags og skatta  og ætla því sennilega að segja nei eða sitja hjá, Atli er að fá inn varamann í mánuð til að þurfa ekki að taka þátt í þessu. Ef þau sitja hjá er frumvarpið samþykkt en þau þurfa bæði að segja nei til að fella það svo lengi  sem Ásta er í burtu. Á vefnum er búið að tilkynna fjarvist Nató- fara en ekki Ástu. Þingmenn Hreyfingarinnar munu að sjálfsögðu reyna að spyrna við  fótum eins og hægt er enn það verður að fá stuðning annars staðar  frá líka, ætlunin er að keyra þetta  í gegn á meðan vantar einhverja úr stjórnarliðinu sem annars myndu sitja hjá.

Ég hef haldið því Fram að Ögmundur og Lilja Mósesdóttir munu sitja hjá ef að það dugar ef það dugar ekki þá greiða þau með, þannig verður það - þangað til annað kemur í ljós.


Notum tímann betur.

Ég býst við að lögbundin brunatrygging hafi verið sett á vegna þess að fólki hefur ofboðið það þegar fólk var að missa íbúðarhús sín í bruna eins er með viðlagatryggingu þ.e. að fólki hefur ofboðið að einstaklingar skyldu bera skaða einir og allann við að missa íbúðarhús sín að hluta til eða alveg af náttúruhamförum, hvort tveggja er að gerast núna í einum pakka og ekkert hægt að gera nema leggja meiri skatta á viðkomandi einstaklinga.

Það urðu efnahagslegar og manngerðar hamfarir sem urðu til þess að eignir fólks sem ekkert hafði með það að gera eru að brenna upp og það eina sem vinstri ríkisstjórn sum sé félagshyggju ríkisstjórn lætur sér detta í hug er að hækka skatta þess sama fólks, þetta er óskiljanlegt.

Það er mér með öllu óskiljanlegt að kjósendur Samfylkingarinnar og VG skuli ekki krefjast meira af sínu fólki, kannski vita þau sem er að það er ekki hægt að krefjast neins af þeim því að þau ráða ekki við verkefnið og það er allt í lagi því að þetta batnar svo svakalega þegar við erum komin í ESB og svo má ekki gleyma því að ef að þessi ríkisstjórn fer frá, sem hún vonandi gerir sem fyrst, þá kemst Sjálfstæðisflokkurinn að, ég er nú bara farinn að vonast eftir því að svo verði því að það er nákvæmlega ekkert að gerast hjá þessari ríkisstjórn sem teljast mætti gáfulegt og svo eru nú aðrir möguleikar í stöðunni en hann og við höfum greinilega nógann tíma í ekkert svo sniðugt gæti verið að nota tímann og efna til kosninga bæði forseta og alþingiskosninga.


Næsta síða »

Höfundur

Högni Jóhann Sigurjónsson
Högni Jóhann Sigurjónsson
Ég segi bara eins og mér finnst, en áskil mér rétt til að skipta um skoðun þegar mér lærist það. hjs@simnet.is
Nóv. 2009
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.10.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 82562

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband