Bráðabyrðaframbúðar redding.

Ég tel ekki álitlegt að fara að breikka og breyta vegamótum á Suðurlandsvegi núna, frá Reykjavík að Selfossi, ég spyr mig að því hvort að það sé ekki ávísun á það að vegagerðin reyni að komast upp með það að vinna mun hægar að tvöföldun vegarins og þar með sé bráðabyrða mix orðið til frambúðar sem sagt bráðabyrðaframbúðar redding.

Hvað ætla menn svo að gera næst þegar slys verður á Suðurlandsvegi og það verður á milli vegamóta, ætla þeir þá að breikka veginn þar og svo áfram koll af kolli.

Það hefði auðvitað átt að vera löngubúið að ganga þannig frá þessum vegamótum að við þau öll væru afreinar, aðreinar og hjáreinar, en hvorki vegagerðin né aðrir sem með málið hafa að gera hér á Suðurlandi virka, þó svo að sumir gaspri ógurlega á meðan athyglin er og klæða sumir sig upp á meira að segja, en fátt er nú gáfulegt sem rúllar yfir tennurnar í þeim.

Ég mundi nú vilja sjá að vegagerðin fari núþegar í að breyta vegamótum austur af Selfossi svo ekki þurfi að redda þeim til bráðabyrða síðar.

Enn eins og ég hef áður sagt það breytir engu hvernig vegurinn lítur út ef að við ætlum að halda áfram að keyra eins fífl.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Þú stendur þig vel í þessu.  Það er einmitt málið, að á meðan menn keyra eins og asnar þá lagast ekkert. Fór í Húrigúrí í dag og allt gekk vel hér á milli, meira segja undir fjallinu hægðu ALLIR á og keyrðu á 70 inn að bæjarmörkum, fyrirmyndar fólk á ferð í dag, ekki einn framúrakstur.

Ásdís Sigurðardóttir, 16.8.2008 kl. 19:45

2 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Ég held þessu aðeins áfram, ég ólst nú upp í nágrenni við Helga Hós svo ég hef fyrirmynd.

Þegar ég fór austur Ölfus í gær undir Ingólfsfjalli mætti ég tveimur ungum ökumönnum sem voru að senda SMS, svo það þarf að halda áfram að reyna að ná sambandi við fólk.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 16.8.2008 kl. 20:34

3 Smámynd: Steingrímur Helgason

Hringvegurinn á bara ekki að liggja þarna, ég hef margsagt þér það & stutt með rökum.

En ég er sammála þér með skammzýna 'sparnaðinn' í því að hafa ekki hjáreinar, afreinar & aðreinar, en þetta er nú afleiðíngin af útboðzstefnu ykkar 'sjallana' til að verktakinn græði sér nú nóg í vazann.

Steingrímur Helgason, 16.8.2008 kl. 23:08

4 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Ég held Steingrímur, að verkfræðingarnir græði mest á þessu og ekki viljum við láta vegagerðarmenn moka verkefnum í vini og vandamenn nóg er af því samt, en hvað með það ég get líka sagt þér að vegagerðin er bara ekkert að vinna að tvöföldun vegarins.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 17.8.2008 kl. 12:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Högni Jóhann Sigurjónsson
Högni Jóhann Sigurjónsson
Ég segi bara eins og mér finnst, en áskil mér rétt til að skipta um skoðun þegar mér lærist það. hjs@simnet.is
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 82295

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband