Er allur Sjálfstæðisflokkurinn einn dópsali?

Ég skaut tveimur vangaveltum á( http://gbo.blog.is/blog/gbo/ )Gunnlaug B. Ólafsson ESB sinna inn á síðu  http://zumann.blog.is/blog/zumann/entry/808627/  Guðmundar Jónasar Kristjánssonar, en hann vildi ekki reyna að svara þeim og eða spjalla við mig um það en saggði mig bara ókurteisann og allt í lagi með það.

Ég er að öllu jöfnu ákaflega kurteis maður, skal viðurkenna að ég verð óskaplega reiður þegar menn reina að tala tvöföldun Suðurlandsvegar niður og þegar Grunnskólinn í Hveragerði kemur til umræðu og svo jú þegar fólk ætlar sér í blindni sinni og gunguhætti að koma okkur undir ESB - hvað sem það kostar.

Ég kíkti aðeins inná síðu Gunnlaugs og sá að þar virðast jáarar helst tjá sig utann einn og einn sem hefur sjálfstæðar skoðannir, en það var þar setning frá Gunnlaugi ,,Meginpunktur minnar færslu er að dópsalinn sjálfur, sem innleiddi frjálshyggjuna, peningahyggjuna, sýnir engan vilja til yfirbótar. http://gbo.blog.is/blog/gbo/entry/810281/  sem vakti mig til þess að skrifa þessar pælinar mínar sem hér eru og hafa oft þvælst fyrir mér, ég fór að velta fyrir mér hvað fær að viðgangast og jafnvel hjá fólki sem er yfirburða kurteist, nú veit ég ekki hvort að Gunnlaugur er að tala um Jón Baldvin, Hannes Hólmstein eða Davíð Oddson eða sjálfstæðismenn alla sem eina heild og er ég í því samhengi búinn að senda lögmanni mínum fyrirspurn um hvaða rétt ég hef í því tilfelli, en margir andstæðingar sjálfstæðisflokksins vilja kenna Hannesi Hólmsteini og eða Davíð Oddsyni um frjálshyggjuna en ég held að Jón Baldvin hafi ekki átt minni þátt í því með EES samningnum og óar mér við því að ganga alla leið í ESB.

Ég velti fyrir mér afhverju það er látið viðgangast að menn bera hverjir aðra þungum sökum opinberlega t.d. þegar Hreinn Loftsson og þá verandi forsætisráðherra Davíð Oddson tókust á um mútur ofl. " í tveggja manna tali" og svo líka þegar Jón Ásgeir bar það upp á formann seðlabankastjórnar Davíð Oddson að hann hafi sagt að hann færi ekki úr úr seðlabankanum fyrr en Baugur væri farið á höfuðið og svo er hægt að halda endalaust áfram, eins og þegar Alþingismenn koma í sjónvarpið og segja fullum fetum að hitt og þetta sé rangt og jafnvel hver upp í annan, er fólk almennt orðið ómarktækt er í lagi að fólk bulli merkingarleysu hvar og hvenær sem er erum við orðin svona dofin að okkur er bara alveg sama, eru engir blaðamenn á Íslandi með metnað, á saksóknari ekki að skoða sum þau ummæli sem látin eru fjúka ss. eins og áburður um mútur?

Þessa daganna ganga ásakannir á víxl millum heilbriggðismálaráðherranna fyrrverandi og núverandi, hvernig væri nú að einhver fari nú með þessa menn saman fyrir framan sjónvarpsvélar inná skrifstofu ráðherra og fái málið á hreint svo þeir geti hætt að tefja fyrir þeim Alþingismönnum sem vilja vinna, eins mætti setja "haltukjafti karmellu" upp í nokkra Alþingismenn Sjáfstæðisflokksins á meðann þau sitja þingfundi í von um að þau hætti þar með að tefja störf Alþingis.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Fyrirgefðu frekjuna í mér Högni Jóhann, en þar sem ég leit hér inn þá kvitta ég.
Takk fyrir góða færslu.
Kveðja
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 24.2.2009 kl. 14:18

2 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Vertu bara velkomin Guðrún Emilía, ég get ekki séð nett frekt við þetta innlit.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 24.2.2009 kl. 17:19

3 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Reyndar hélt ég það vegna þess að okkur samdi ekki einhvern tímann í firndinni, er búin að gleyma vegna hvers.
Kveðja til þín
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 24.2.2009 kl. 18:48

4 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Ég man alveg hvað það var Milla og er enn á þeirri skoðun sem ég var þá,  en þó svo að ég sé ósammála einhverjum í einhverju þá þýðir það ekki að ég geti ekki talað við viðkomandi um eitthvað annað og verið sammála þar.

Við höfum alveg fullann rétt á að vera ósammála en þurfum ekki vera óvinir.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 24.2.2009 kl. 18:56

5 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Nei auðvitað ekki það væri nú sérkennilegt ef maður væri til dæmis ósammála maka sínum,( sem ég er reyndar oft) og mundi bara vera óvinur hans.
Það gengi ekki upp.
Kveðjur
Milla.

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 24.2.2009 kl. 19:23

6 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Auðvitað ráðum við við að takast á um hugmyndir.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 24.2.2009 kl. 22:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Högni Jóhann Sigurjónsson
Högni Jóhann Sigurjónsson
Ég segi bara eins og mér finnst, en áskil mér rétt til að skipta um skoðun þegar mér lærist það. hjs@simnet.is
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 31
  • Frá upphafi: 82260

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 31
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband