Nágranninn........................

Mér var send þessi vísa og finnst hún frábær. höfundur er ókunnur og ég tek mér það bessaleyfi að setja hana hér því að það verða sem flestir að fá að njóta.

2007

Ég á minnsta húsið í götunni,
húsið sem stendur hjá Lödunni.
Þegar granninn rennir í pottinn hjá sér-
kólna allir ofnarnir hjá mér.
Eftir að granninn gerði upp garðinn hjá sér
skín ekki sólin lengur í garðinn hjá mér.
Granninn fær ráðherrana í grillið til sín
og bræluna leggur svo yfir til mín.

Granninn á jeppa af flottustu sort,
en ég á bara ljóta Lödu Sport.
Ég fer í vinnuna með rútunni,
en hann með einkaþyrlunni.

2008

Konan hans eldist ekki hætings hót,
en mín er alltaf bæði feit og ljót.
Granninn er stæltur og með hárið ljóst,
En ég er bæði með ístru og lafandi brjóst.

Þegar granninn er með veislu hjá sér,
býður hann öllum, öllum - nema mér.
Elton John skemmti lýðnum í afmælinu,
en ég hafði bara efni á Breiðbandinu.

Óþolandi er oft, vel stæði granninn minn,
Það trúa því fáir, að hann sé sonur minn.

2009

Nú er hann kominn á heimilið mitt
og fluttur í gamla herbergið sitt.
Í kreppunni hann missti allt sitt fé.
Og nú á hann minni pening en ég.

Það kviknaði í báðum jeppunum,
og konan er farin frá honum.
Nú hangir hann heima rosa down,
og bölvar og ragnar Gordon Brown.

Höf. óþekktur


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég sá þessa fyrr í sumar, hrein snilld.

Ásdís Sigurðardóttir, 25.7.2009 kl. 16:46

2 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Ég hafði ekki séð hana og já hún er hrein snilld.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 25.7.2009 kl. 16:48

3 Smámynd: Agnes Ólöf Thorarensen

Þetta er raunsönn staða hjá þessum aðilum.

Agnes Ólöf Thorarensen, 25.7.2009 kl. 23:17

4 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Já nákvæmlega.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 25.7.2009 kl. 23:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Högni Jóhann Sigurjónsson
Högni Jóhann Sigurjónsson
Ég segi bara eins og mér finnst, en áskil mér rétt til að skipta um skoðun þegar mér lærist það. hjs@simnet.is
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 10
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 10
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband