Borgarahreyfingin sem grasrótarafl

Við undirrituð teljum að meðfylgjandi tillögur að samþykktum fyrir Borgarahreyfinguna
muni tryggja að hreyfingin starfi áfram á þeim grunni sem að hún lagði af stað með,
að hún sé hreyfing en ekki stjórnmálaflokkur.
Við teljum að þessar grasrótarsamþykktir muni tryggja að svo verði, meðan að tillögur
að þeim flokksamþykktum, sem einnig hafa verið lagðar fram, geri hreyfinguna að
tiltölulega hefðbundnum stjórnmálaflokki.”

Baldvin Björgvinsson
Baldvin Jónsson
Birgitta Jónsdóttir
Daði Ingólfsson
Gunnar Waage
Högni Sigurjónsson
Jóhann Ágúst Hansen
Katrín Snæhólm
Lísa Björk Ingólfsdóttir
Margrét Rósa Sigurðardóttir
Margrét Tryggvadóttir
Rakel Sigurgeirsdóttir
Sigurlaug  Ragnarsdóttir
Þór Saari

1

Samþykktir Borgarahreyfingarinnar

Félagið heitir Borgarahreyfingin og er starfsvæði þess Ísland. Heimili Borgarahreyfingarinnar og

varnarþing er í Reykjavík.Borgarahreyfingin skal lúta lögum nr. 162/2006 um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjó

ðenda og

um upplýsingaskyldu þeirra. Öll fjármál hreyfingarinnar skulu vera opinber og aðgengileg almenningi.

Markmið

1. Markmið Borgarahreyfingarinnar er að koma málefnum fyrirliggjandi stefnuskráar sinnar í

framkvæmd og hún skal leggja sig niður og hætta störfum þegar markmiðunum hefur verið ð eðaaugljóst er a

ð þeim verði ekki náð. Þessari grein má einungis breyta með einróma samþykki

landsfundar.

2. Aukamarkmi
ð hreyfingarinnar er að hjálpa grasrótarhreyfingum á Íslandi að koma sínum

sjónarmiðum á framfæri.

3. Hreyfingin býður fram til alþingiskosninga til að ná fram markmiðum sínum.

Skipulag

Framkvæmdastjóri

1. Þegar fjárráð leyfa skal hreyfingin ráða framkvæmdastjóra. Verksvið hans verður:

að starfa með grasrótarhreyfingum á Íslandi og hjálpa þeim að koma boðskap sínum á

framfæri:

o við þingmenn Borgarahreyfingarinnar.

o við þingmenn annarra stjórnmálaafla.

o við aðra grasrótarhópa.

o við stofnanir og fyrirtæki eftir því sem þurfa þykir.

o við almenning í gegnum fjölmiðla og rafræna miðla.

að auðvelda grasrótarhópum starfsemi sína með því að útvega fundaraðstöðu og annað sem

þarf og er á færi hreyfingarinnar auk þess að miðla reynslu annarra hópa

að halda utan um hópa sem vilja starfa fyrir hreyfinguna á einn eða annan hátt

að sjá um fjármál hreyfingarinnar, bæði uppgjör og áætlanir

að skipuleggja atburði sem tengjast stefnumálum hreyfingarinnar s.s:

o auglýsa eftir framboðum á vegum hreyfingarinnar til nýrra alþingiskosninga ef þurfa

þykir.

o skipuleggja árlegan opinn landsfund hreyfingarinnar.

o aðrir atburðir.

2. Framkvæmdastjóri skal ráðinn á faglegum forsendum ofannefndrar verksviðslýsingar af einni af

þremur stærstu ráðningarstofum landsins hverju sinni er best býður í verkið. Önnur ráðningastofa eða

fagaðili skal meta störf framkvæmdastjóra á hálfs árs fresti eða þegar stjórn hreyfingarinnar óskar

sérstaklega eftir því.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Steingrímur Helgason

Margt þarna minni vitlauzar en annarz ztaðar...

Hefur mína önd í ztuðníng.

Steingrímur Helgason, 9.9.2009 kl. 23:48

2 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Takk fyrir það kærlega.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 9.9.2009 kl. 23:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Högni Jóhann Sigurjónsson
Högni Jóhann Sigurjónsson
Ég segi bara eins og mér finnst, en áskil mér rétt til að skipta um skoðun þegar mér lærist það. hjs@simnet.is
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (10.5.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband