11.11.2009 | 13:01
"stóra plottið" ?
Ég heyrði snemma í haust talað um að ISG myndi koma til baka í stjórnmálin að nýju, átti að gerast fyr í haust, en eitthvað hefur tafið, annaðhvort Icesave málið eða sem líklegra er að heilsan hefur ekki komið eins hratt til baka og vonir hennar stóðu til, en plottið átti að ganga út á að stuðningsfólk hennar innan SF mundi reyna með öllum tiltækum ráðum að koma Össuri og Jóhönnu frá og svo átti ISG að koma sem einhverskonar bjargvættur.
Nú virðist það vera að gerast þ.e. að hún er að undirbúa endurkomu sína, ætlar greinilega að sýna einhverskonar iðrun en mér sýnist það nú bara vera væmna typan af hroka, ég veit ekki hvort að ISG geti sýnt auðmýkt en kannski að "lægra sett" starfsfólk í Ráðhúsinu og öðrum stofnunum þar sem hún hefur haft með að gera geti sagt eitthvað til um það, mér skylst að þar sé einginn á þeirri skoðun að hún geti komið "niður" á sama plan og pupullinn, en í því samhengi er rétt að athuga að við eigum það til að setja fólk á stalla að þeim forspurðum og halda þeim þar.
En vonandi fer hún bara til Öse, allavega þá hljóta stjórnmálamenn að fara að athuga það að við viljum meiri endurnýjun en átti sér stað fyrir síðustu alþingiskosningar og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir tilheyrir "reyndari" kynslóðinni og við vitum öll hverju reynslan skilaði.
Kjósendur SF og VG fariði nú að vakna og krefjast aðgerða annara en endalausra pólískra leikja eins og eru í gangi núna bæði með ISG og skýrslu rannsóknarnefndar alþingis sem ríkisstjórnarflokkarnir eru að ritskoða og fleiri barnalegra fíflaláta til þess eins að fela sitt og sinna.
![]() |
Ingibjörg Sólrún: Var lasin og reið á Borgarafundinum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
5.11.2009 | 20:29
Íslenskt, já takk.
Fyrir þá sem af einhverjum undarlegum hvötum sjá aldrei neitt jákvætt við Íslenska framleiðslu og ráðast að Íslenskri framleiðslu í hvert sinn sem þau geta og þó einkum og sér í lagi Íslenskum landbúnaði og reyna öllum stundum af einhverju óskiljanlegu "útlendingasnobbi" að telja mér trú um að ef bara ég gengi í ESB þá fengi ég svo góðann og umfram allt ódýrann mat og vandaðann frágang sem kostar ekkert aukalega, þá var ég að elda og borða kjúkkling sem pakkað er í Danmörku, þó svo að það standi á pakkningunni að hann sé framleiddur í Danmörku er það gersamlega óvitað hvaðann uppruninn er og þetta var nú bara pakki af blóði og sinum innan um vatnssprautað þriðjaflokks kjöt.
Æi nei takk ekkert fokking ESB á minn disk.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
5.11.2009 | 01:09
Auðvitað, bara forgangsröðun.
![]() |
Álag of mikið á héraðsdómstóla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.11.2009 | 14:44
Stolið og birt lítið breytt.
er það hneyksli að henni sé frestað fram í febrúar. Skýrslan er víst
mjög svört og bakland hrunsins er mun verra en menn hafað þorað að
ímynda sér. Stjórnmálamenn koma þar töluvert við sögu og þar á meðal
margir sem eru núverandi þingmenn.
Það sem er hneyksli er að ríkisstjórnin hefur fengið einhverskonar
forskoðun eða útdrátt úr skýrslunni nú þegar. Hvar stendur sjálfstæði
og trúverðugleiki þessarar rannsóknarnefndar þegar svo er? Það er nú
strax búið að grafa undan trúverðugleika skýrslunnar með þessari
frestun.
Ástæðan sem verður væntanlega gefin fyrir frestun birtingu er að leyfa
fólki að eiga friðsæla hátíð. Raunverulega ástæðan er að koma á höggi
á pólitíska andstæðinga svo stuttu fyrir sveitarstjórnarkosningarar að
viðkomandi flokkar eiga sér ekki viðreisnarvon. Enn og aftur er verið
að nota harmleik hrunsins í pólitíska refskák. VG og Samfylkingin
verða fyrir ævarandi skömm ef þau láta sér þetta eftir.
Ég vil að þið sem eruð kjósendur VG og S komið þeim skilaboðum
á framfæri að þetta sé algjörlega óþolandi íhlutun í upplýsingu mála.
Við eigum að fá skýrsluna strax upp á borðið og útkljá innihald hennar
í samfélaginu án truflana frá valdasjúkum stjórnmálamönnum. Ég segi
fyrir mig að ég hef engan áhuga á að fara í gegn um hátíðarnar með
þetta hangandi yfir.
Sjálfstæðisflokkurinn þykist hafa tekið til hjá sér en það var
kattarþvottur í besta falli. Afneitun kjarna stuðningsmanna flokksins
er algjör. Því fyrr sem sannleikurinn er leiddur í ljós því betra.
Seta spilltra þingmanna hefur hugsanlega nú þegar valdið ómældum skaða
fyrir þjóðina.
Með því að fresta skýrslunni eru núverandi stjórnvöld að skemma fyrir
trúverðugleika hennar. Hvað fleira hefur verið haft áhrif á? Hefur
eitthvað af núverandi valdagengi verið fjarlægt úr skýrslunni? Eða á
að gefa sér tíma til þess? Svona spurningar koma upp um leið og
stjórnvöld ílutast í framkvæmdina. Menn bara meiga ekki leyfa sér þetta.
Ég segi, skýrsluna upp á borðið eins og til var boðað í upphafi.
Enginn stjórnmálamaður á að fá að skoða hana fyrirfram. Þetta er gert
fyrir þjóðina en ekki valdhafa hafið það í huga. Öll íhlutun
stjórnmálamanna í störf nefndarinnar er alvond, þeir grafa ekki bara
undan skýrslunni, þeir grafa undan eigin trausti."
Það er kominn tími á alvöru mótmæli - ný skilti og nýjar kröfur
ein krafan gæti verið að skýrslan verði birt í nóvember.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.11.2009 | 19:09
Hvað eru VG að gera í ríkisstjórn?
Í fyrsta lagi þá er auðvitað búið að ganga þannig frá að Icesave málið fer í gegnum þingið eins og Jóhanna vill, þau sitja hjá þarna nokkur sem er auðvitað sama og samþykki, því hvað gerum við ekki fyrir völdin og svo má það víst kosta hvað sem er að Sjálfstæðisflokkurinn komist ekki að völdum þó svo að engin rök séu önnur fyrir áframhaldandi stjórnarsetu.
Enn hvað eru Vinstri hreyfingin grænt framboð að gera í ríkisstjórn, þar fer hvert málið af öðru fyrir alþingi sem er gegn þeirra innstu sannfæringu og ekki síður gegn áliktunum VG og takandi svo í þokkabót þátt í því að riðlast sem mest er hægt á ellilífeyrisþegum og öryrkjum?
![]() |
Gefur ekki upp Icesave-afstöðu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
loathor
-
axelthor
-
baldvinj
-
kaffi
-
virtualdori
-
folkerfifl
-
gebbo
-
neytendatalsmadur
-
stjornarskrain
-
gudni-is
-
sannleikur
-
zumann
-
gunnarggg
-
tudarinn
-
hallgrimurg
-
helena
-
810
-
ringarinn
-
ingabesta
-
jonaa
-
fiski
-
nonniblogg
-
jonvalurjensson
-
kolbrunb
-
ksh
-
krist
-
lindagisla
-
wonderwoman
-
altice
-
korntop
-
noosus
-
magnusthor
-
martasmarta
-
svarthamar
-
framtid
-
sigurdursig
-
siggisig
-
stjornlagathing
-
lehamzdr
-
svanurkari
-
svavarthai
-
tryggvigunnarhansen
-
valdimarjohannesson
-
vincentvega
-
sailor
-
olllifsinsgaedi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.10.): 0
- Sl. sólarhring: 2
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar