Já ókei, en.

Var Jóhanna ekki að biðja mig um að kjósa sig svo að hún gæti farið í ESB og þaðan kæmu svo lífsgæði mikil með næsta skipi og þar með talin atvinna í dúsinum. Ég hlýt að vera að rugla eitthvað.
mbl.is 12,5% samdráttur í Litháen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einangrun

Við búum á eyju, látum alla í 7 daga einangrun sem koma til landsins, ég veit að það truflar marga og það tekur pláss, en það truflar fleiri og tekur meira pláss ef við fáum veiruna inn í landið án þess að reyna að stoppa hana.
mbl.is Ótti við svínaflensu vex
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sunnlendingar og aðrar kjósendur.

              Við erum búin að reyna og það lengi, gömmlu flokkana og ekki liggur mikið eftir þá í kjördæminu eða landinu yfirleitt, eiginlega ekkert sem skapar atvinnu til lengri tíma.

    Ég vil breytingar og það mikklar, það þarf að skipta um fólk í Alþingishúsinu og toppana í allri stórnsýslunni, enn það þarf að gera eitthvað stórt hér í Suðurkjördæmi og atvinnulífinu í landinu öllu.

    Sunnlendingar og aðrar kjósendur nú er tækifæri kjósum nýtt fólk með ný gildi og nýjar hugmyndir kjósum Borgarahreyfinguna, sendum ekki færri en 8 einstaklinga frá Borgarahreyfinguinni á þing og gerum hana gildandi á þingi, látum Borgarahreyfinguna skipta máli í stjórnarmyndun.

X O


Í aðdraganda kosninga.

Það er sorglegt að horfa upp á þann aðdraganda kosninga sem nú fer fram, frambjóðendur gömmlu flokkana keppast við að bulla um hvað þeir ætla að gera vitandi að þeir geta ekkert staðið við það og að það stendur heldur ekki til og sumir reyna meira að segja að telja kjósendum trú um að ef að við bara göngum í ESB klúbbinn þá verður allt svo gott og kjósendur standa, nú eða sitja eftir atvikum og glápa opinmynntir á þessa sömu frambjóðendur ljúga að sér og kokgleypa það alltsaman.Þessir frambjóðendur sem ætla allt fyrir okkur að gera eru í framboði fyrir flokka sem aftur og aftur hafa í gegnum tíðina boðið gull og græna skóga en fátt af því gert og svo er einnig nú. Þingmenn Suðurkjördæmis hafa ekki yfir mörgu að monnta sig eftir undanfarin ár og enn og aftur ætla þingmenn að komast á þing á sama kjaftæðinu, það stendur ekki til hjá Samfylkingarmönnum að tvöfalda Suðurlandsveg þeir “ætluðu” það fyrir síðustu kosningar líka en þeir reyndu það ekki einu sinni og ætla ekki að reyna það núna heldur, það eina sem þau Samfylkingarfólk ætla að gera er að koma okkur í ESB og hvað sem það kostar, afhverju eru vandræði í Lettlandi, afhverju eru sjómenn í Frakklandi óánæggðir, afhverju ætti að koma atvinna í skipsförmum frá ESB til Íslands það er atvinnuleysi í ESB ríkjunum og afhverju ættu sjóðir banka, fyrirtækja og heimila að túttna út við það eitt að gjalmiðillinn heiti Evra, þarf þjóðin ekki tekjur ef  hún gengur í eina sæng með þýskum og Frönskum undir ESB merki, ESB er að liðast í sundur í kreppunni, það er ekki bara kreppa á Íslandi. Trúir fólk því virkilega að við þurfum ekki útflutningstekjur ef við göngum í ESB, trúir fólk því virkilega að ESB ríkin langi ekki í orkuna okkar og vatnið eða fiskinn, trúir fólk því virkilega að við inngöngi í ESB þurfum við ekki lengur að gæta að vöruskiptajöfnuðinum, trúir fólk því virkilega að matvara sem er eitthvað ögn lægri í verði í stórmörkuðum í Evrópu haldi verði og ferskleika eftir 7 daga á sjó, trúir fólk því virkilega að við fáum eitthvað annarskonar samninga en aðrar þjóðir?Gömmlu flokkarnir eru svo innvinklaðir í “ýmislegt” að við ættum að gefa þeim öllum frí og prófa nýtt fólk og ný gildi.Núna er tækifæri það er núna sem við eigum að breyta gildum okkar og lifa hægar og vera meira saman það getur ekki falist ánægja í því að vinna myrkranna á milli til þess eins að vera með flottari útihurð en nágranninn og njóta hennar svo aldrei í björtu, nágranninn sér hana heldur ekki í björtu því að hann er að vinna fyrir sinni sem hann sér heldur aldrei í björtu.Yfir 80% þjóðarinnar segist vilja breytingar en Gömmlu flokkarnir eru samt með yfir 80% fylgi í skoðannakönnunum, eru Íslendingar þá eftir allt gungur, þorir hinn almenni Íslendingur ekki að breyta, þora Íslendingar ekki að breyta kolröngum gildum og vera meira heima með fjölskyldum sínum?

Það þarf tvo til, í pólitík.

Svo pólitík lifi eins og við höfum ræktað hana þarf einn til að ljúga og annan til láta ljúga að sér og hér nóg af hvoru tveggja.

Í Danmörku snérist ESB um vexti og matarverð þangað til dagin eftir kosningar þá snérist ESB um stjórn Danmerkur.

Hverju voru Franskir sjómenn að mótmæla hér fyrir nokkrum dögum og samt er fólk enn að segja að ESB muni ekki reyna að ná að sölsa undir sig auðlyndum okkar, þau vantar ekki bara fisk þau vantar vatn líka.

Við skulum átta okkur á að það eru sömu útrásavíkingarnir sem enn eru að reyna að koma okkur í ESB og nota ennþá Sameignina (Samfylkinguna) og hafa bætt örfáum öðrum við sem geta talað og talað án þess að segja nokkuð.

Af hverju vilja fleyri og fleyri í Evrópu komast út úr ESB og hvað er eiginlega að í Lettlandi?

Af hverju getur Ölgerðin ekki selt á England eins og fiskútflytjendur?


mbl.is Vaxtaávinningur af ESB-aðild: 228 milljarða lækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sunnlendingar!!!!! Finnst ykkur þingmenn okkar hafa skilað einhverju í kjördæmið?

 Það er ekki auðvelt að koma með lausnir í ástandi eins og nú er, en sammt eiga þeir sem gátu ekki gert neitt okkur til varnar ráð undir rifi hverju núna og hvað þau ætla ekki að gera á næsta kjörtímabili, þetta fólk talar allt eins og dagurinn í dag sé fyrsti vinnudagurinn þeirra í pólitík og lýgin sem uppúr því vellur, maður lifanndi.  Af hverju voru Franskir sjómenn að mótmæla um dagin nema af því að ESB tók af þeim auðlyndirnar? Afhverju ætti klúbbur eins og ESB að taka inn meðlimi eins og Ísland með ekkert meðlag inn í klúbbinn, en aftur á móti að láta þessum meðlim í té ótakmörkuð gæði þ.m.t. vinnu og seðla í gámavís? Afhverju ætti einn meðlimur sem sækir um í klúbbinn að fá aðra meðferð enn þeir sem á undan gengu í klúbbinn? Afhverju segja Íslenskir pólitíkusar eins og Samfylkingarfólk, að þau viti ekki hverslags samning við fengjum, hvað er þetta fólk búið að vera að gera undanfarin ár, það vita allir sem það vilja vita hverslags samning við fáum, hann yrði bara eins og hjá öðrum þjóðum og við leggjum einfaldlega allt okkar til eins og aðrar þjóðir hafa gert, sumar með dagsetningum þ.e. í samningunum eru aðlögunnarákvæði um að landbúnaður og eða orka verður yfirtekin eftir svo og svo mörg ár? Af hverju eru Lettar í svona mikklum vandræðum? Afhverju vill almenningur í Austurríki, sunnanverðu Þýskalandi, Frakklandi, Spáni, Írlandi og Svíþjóð losna undann því að greiða stórar fjárhæðir til ESB en fá nánast ekkert til baka eða með öðrum orðum afhverju vill almenningur í áður upptöldum löndum ganga úr ESB, undan farin og næstu misseri, fer allt sem inn kemur í ESB til ríkja í austanverðri evrópu sem hafa nýverið gengið í og sótt um inngöngu í ESB? Hverjir af þeim preilátum sem framarlega eru í Íslensku þjóðlífi vilja af öllum mætti og fyrir hvað sem er ganga í ESB? Jú það eru fyrst og fremst þeir sem eru í atvinnurekstri sem gæti hugsanlega grætt enn meira og falið enn meira með inngöngu í ESB. ESB innganga gengur ekkert út á einstaklinga eins og Sameign útrásarvíkinga (Smfylkingin) lætur í veðri vaka, í Danmörku var fólki talið trú um að innganga í ESB væri alfarið neytendamál, matvara og vextir myndu lækka og atvinna kæmi í gámavís inn í landið, en daginn eftir kom í ljós að þetta snérist alfarið um pólitík og drauma þjóðverja um allsherjar yfirráð yfir allri Evrópu og í dag ræður ESB yfir kvóta Danskra sjómanna. Það er bara útilokað að nokkur þjóð komist undan því að afla eigin tekna og  byggja upp eigin sjóð þó svo að hún gangi í einhvern aðildarklúbb (ESB). Ef ég og mín fjölskylda flyttum í blokk með sameiginlegt bílastæði þá þyrftum við alltaf að afla okkar eigin tekna og greiða fyrir snjóruðninga af  sameiginlegu bílastæði og þrif í stigagangi og utanhúsmálningu með öðrum íbúum blokkarinnar. Það að ganga í ESB sé einhver lausn er bara enn ein lýgin úr krata auðvaldsklíkum, öfgaklíkur kratanna eru ekkert betri en öfgaklíkur íhaldsins, úr báðum þessum klíkum veltur lýgin yfir tennur tennur þeirra í hvert sinn sem þau opna munnin. Ég vil Ísland áfram í eigu Íslendinga ég vil að við eigum orkuna, vatnið sjávarútveginn og landbúnaðinn sjálf. Við erum afkomendur dulegra Íslendinga sem í aldir hafa búið okkur í haginn og við eigum mikklar auðlyndir sem að núna skipta máli því að núna kreppir að um allann heim og það er núna sem skiptir máli að það séum við sem með þær förum og það er núna sem skiptir máli að vera með eigið hagkerfi og það lítið og það er núna sem við höfum tækifæri til að breyta og það er núna sem við skulum nota tækifærið og breyta, losum okkur við lygamerðina. Samfylkingin ætlar enn einu sinni að nota tvöföldun Suðurlandsvegar til að veiða atkvæði Björgvin G. lýgur nánast öllu sem upp úr honum vellur, það stendur ekki til af hálfu Samfylkingar að bjóða út tvöföldun Suðurlandsvegar þetta er bull sem tekið verður til baka eftir kosningar. Ragnheiður er til í að gera hvað sem er til að moka meiru undir auðvaldið, Atli Gísla er kominn upp á lag og langar í meira og meira. Sunnlendingar!!!!!!!!!!! Finnst ykkur þingmenn okkar hafa skilað mikklu í kjördæmið? Finnst ykkur ástæða til að láta þá eyða enn einu kjörtímabilinu á fínum launum í fínni innivinnu í fínum veislum í fínu fötunum, gerandi ekki neitt fyrir kjördæmið?Við sem þorum og viljum breytingar kjósum Borgarahreifinguna.

XO


Hvað vinst með ESB?

Dugar að kaupa prentvél, pappír og blek og skiptast svo á að sitja yfir prentvélinni á meðan út úr henni renna evrur, er það svo að þjóðin sem slík þarf ekki tekjur ef að við göngum í ESB, þarf ekki að hugsa um innflutningsjöfnuð eftir að hafa gengið í ESB og lækka vextirnir af sjálfu sér, verður hægt að flytja inn atvinnu í gámavís ef að við göngum í ESB, þurfum við ekki að hugsa um að setja upp vatnsverksmiðjur sjálf ef að við látum ESB eftir vatnsauðlyndirnar þurfum við ekki að hugsa um að virkja sjálf eftir að hafa látið ESB eftir vatnsföllin okkar, þurfum við þá ekki að stunda útræði áfram í eigin reikning eftir að hafa látið ESB eftir sjáfarútveginn eða að vera yfirleitt að pæla í olíu því að ESB sér um það hvað þá að vinna yfirleitt, bara prenta og eyða.

Þá er ég með enda með eindæmum latur maður, en ekki huglaus eða óáræðinn enda ekki Samfylkingarmaður.


mbl.is Evrópustefnan verði á hreinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góður Atli

Það síðasta sem við þurfum núna er að láta Þjóðverjana taka okkur í afturendann, höfum hingað til verið fullfær um að stunda sjálfs........píningar.
mbl.is VG ekki tilbúinn í aðildarviðræður í sumar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útrás?

Eru leikararnir við Austurvöll farnir að stofna útibú hér og þar, mikið var gott að stjórnarskrármálið hélt þessum fí......... inni í móðurleikhúsinu svo lengi sem raunin varð.
mbl.is Stofnað leikhús í Kaffivagninum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ákveðinn

Ég hefi ákveðið hvað ég ætla að kjósa, ég ætla að kjósa B og D.

Rök:

Í fyrsta lagi: Það er Framsóknarflokknum að þakka að stjórnarskrármálið er á dagskrá Alþingis og það er Sjálfstæðismönnum að þakka að málið er þæft svo báðir flokkarnir eiga heiður skilið fyrir að sjá til þess að þingmenn eru ekkert meira innan um Fólk en raun ber vitni, því þeir eru ekki til þess hæfir.

Í öðru lagi: Mér finnst nauðsynlegt að við getum keypt okkur þingmenn, við eigum að geta átt þingmenn í takt við kaupgetu okkar og ekki síður vina og ættatengsl.

Ps. Mig vantar nýja vini og einhvern ríkann, mjög ríkann til að ætleiða mig.


Næsta síða »

Höfundur

Högni Jóhann Sigurjónsson
Högni Jóhann Sigurjónsson
Ég segi bara eins og mér finnst, en áskil mér rétt til að skipta um skoðun þegar mér lærist það. hjs@simnet.is
Apríl 2009
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.10.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 5
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband