9.3.2009 | 21:42
Ég er alltaf að græða.
Þennan græddi ég í gær á afmælisdegi elsta sonar míns, hann þykist hafa grætt hann í afmælisgjöf, en það var nú ég sem græddi hann og það svo gott sem fyrirhafnarlaust, svona bara "smá" stress.
Þennan græddi ég undir haust er leið og það líka fyrirhafnalítið af minni hálfu, bara "smá" stress.
Og svo fékk ég eina fyrir rúmum 4 árum og líka fyrirhafnarlítið, bara "stress" að öðru leyti voru það dætur mínar sem sáu um erfiðið og þeirra makar um það stress sem þeim bar og áttu skilið.
Ég græddi bara.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
5.3.2009 | 19:02
Endurnýjun eða endurvinnsla í Suðurkjördæmi?
Það hlýtur að vera von okkar kjósenda í Suðurkjördæmi og trú, að endurnýjun verði veruleg á hinu háa Alþingi.
Endurnýjun hefur ekki átt sér stað og mun ekki eiga sér stað, nema við kjósendur sjáum til þess að bæði innan flokka og í þingmannahópnum í heild sinni komi inn nýtt fólk. Inn um lúgur og í póstkassa okkar koma núna skrautpappírar, í blöðum skrautmyndir og svo er netið notað mun meira nú enn áður og ekki vantar blaðrið um hvað viðkomandi frambjóðendur hafa til síns ágætis og að þau eigi bæði maka, börn og barnabörn, þau hafa lært svo og svo mikið í hinum ýmsu skólum bæði lífsins og akademískum, einhver þeirra koma inn á það hvað þarf að gera á komandi árum og hverju þau munu vinna brautargengi ef við veitum þeim umboð til.
Það sem kemur mér mest á óvart er að þar eru jafnvel núverandi þingmenn og þekkti ég þar hvorki neytt þeirra á mynd, nema Árna Johnsen enn hver þekkir hann ekki á mynd, né að ég muni eftir nokkrum einasta hlut sem liggur eftir þau í kjördæminu og það sem meira er að þau eru bara alls ekkert að minna mig á það neitt, kannski ekki skrítið.
Kjósendur Suðurkjördæmis! Eigum við ekki að standa okkur í okkar kröfum og skipta notuðum þingmönnum út fyrir, ja ekki get ég sagt ónotaða því þá gætu þeir allt eins setið áfram sem nú sitja, en allavega aðra og svo skiptum við þeim út bara aftur næst sem ekki standa sig.
Við eigum að senda fólk á þing sem vinnur fyrir kjördæmið í heild sinni en ekki vini og vandamenn og þá hvar sem þeir búa, nú skiptir mikklu máli að hætta að kjósa eins og pabbi og afi kusu og kjósa heldur eftir því sem við treystum því fólki til verka sem býður sig fram og gerum svo kröfur til þeirra.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
3.3.2009 | 11:39
Stöndum okkur nú sunnlenskir sjálfstæðismenn.
Og hendum þeim sem voru síðast, það liggur nákvæmlega ekkert eftir þau í kjördæminu.
Veljum nýtt fólk í von um að þau vinni fyrir fólkið í kjördæminu.
![]() |
17 í prófkjör D-lista í Suðurkjördæmi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.3.2009 | 22:49
Hvað er í gangi?
Kristján Möller segist hafa gefið Vegagerð Ríkisins skipun um að tvöfalda Suðurlandsveg, það hafði Sturla líka sagt sem svo reyndist vera lýgi, en hvað gerist, Vegagerðin fer að eyða tíma og peningum í að vinna eina skýrslu enn um mismun 2+1 og 2+2.
Ég ætla ekki að fara enn einu sinni að þrátta um hvort sé "betra" eða hvort að 2+1 sé víða í heiminum eða hvort að hægt sé að leggja 2+1 "helmingi" lengra en 2+2.
Ég ætla aftur á móti að velta mér uppúr því hvort Kristján Möller er að ljúga þegar hann segist hafa lagt svo fyrir að vegagerðin skuli fara að vinna að tvöföldun Suðurlandsvegar eða hvort að vegagerðinni sé gjörsamlega fyrirmunað að fara að skipun Samgönguráðherra.
Þetta er farið að minna um of á Samfylkinguna sem ætlar okkur í ESB, hvað sem það kostar, eins er með vegagerðina hún ætlar að byggja 2+1 hvað sem það kostar.
Ég lofa því hér og nú að svo skal ekki verða, nema yfir mig verði urðað fyrst.
![]() |
Umferðaröryggi og afköst aukast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.3.2009 | 20:12
Það rætist
![]() |
Ryan Giggs: Stefnum á að vinna alla bikarana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
27.2.2009 | 16:02
Æi!!
Ég trúi því að þarna séu hæfir einstaklingar ráðnir og verum ekki að velta okkur upp úr því hvort fleiri eða færri af öðru kyninu séu þar eða hér.
Tökum á því sem þarf að taka á en eyðum ekki tíma og orku að hætti þingmanna.
![]() |
Hugsanlega brot á jafnréttislögum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.2.2009 | 13:23
Lifa Sjálfstæðismenn í afneitun?
Við vorum rétt að jafna okkur eftir fögnuðinn yfir ákvörðun Árna Mat. þegar þessi hugmynd dundi á okkur.
Það hefði nú ekki verið von á mikklu ef DO hefði farið í pólitík af hefndargirnd einni saman.
Almennt vilja Sunnlendingar nýja menn í efstu sæti allra flokka hér á Suðurlandi, NÝJA menn.
![]() |
Davíð svaf á hugmynd um framboð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.2.2009 | 13:39
Er allur Sjálfstæðisflokkurinn einn dópsali?
Ég skaut tveimur vangaveltum á( http://gbo.blog.is/blog/gbo/ )Gunnlaug B. Ólafsson ESB sinna inn á síðu http://zumann.blog.is/blog/zumann/entry/808627/ Guðmundar Jónasar Kristjánssonar, en hann vildi ekki reyna að svara þeim og eða spjalla við mig um það en saggði mig bara ókurteisann og allt í lagi með það.
Ég er að öllu jöfnu ákaflega kurteis maður, skal viðurkenna að ég verð óskaplega reiður þegar menn reina að tala tvöföldun Suðurlandsvegar niður og þegar Grunnskólinn í Hveragerði kemur til umræðu og svo jú þegar fólk ætlar sér í blindni sinni og gunguhætti að koma okkur undir ESB - hvað sem það kostar.
Ég kíkti aðeins inná síðu Gunnlaugs og sá að þar virðast jáarar helst tjá sig utann einn og einn sem hefur sjálfstæðar skoðannir, en það var þar setning frá Gunnlaugi ,,Meginpunktur minnar færslu er að dópsalinn sjálfur, sem innleiddi frjálshyggjuna, peningahyggjuna, sýnir engan vilja til yfirbótar. http://gbo.blog.is/blog/gbo/entry/810281/ sem vakti mig til þess að skrifa þessar pælinar mínar sem hér eru og hafa oft þvælst fyrir mér, ég fór að velta fyrir mér hvað fær að viðgangast og jafnvel hjá fólki sem er yfirburða kurteist, nú veit ég ekki hvort að Gunnlaugur er að tala um Jón Baldvin, Hannes Hólmstein eða Davíð Oddson eða sjálfstæðismenn alla sem eina heild og er ég í því samhengi búinn að senda lögmanni mínum fyrirspurn um hvaða rétt ég hef í því tilfelli, en margir andstæðingar sjálfstæðisflokksins vilja kenna Hannesi Hólmsteini og eða Davíð Oddsyni um frjálshyggjuna en ég held að Jón Baldvin hafi ekki átt minni þátt í því með EES samningnum og óar mér við því að ganga alla leið í ESB.
Ég velti fyrir mér afhverju það er látið viðgangast að menn bera hverjir aðra þungum sökum opinberlega t.d. þegar Hreinn Loftsson og þá verandi forsætisráðherra Davíð Oddson tókust á um mútur ofl. " í tveggja manna tali" og svo líka þegar Jón Ásgeir bar það upp á formann seðlabankastjórnar Davíð Oddson að hann hafi sagt að hann færi ekki úr úr seðlabankanum fyrr en Baugur væri farið á höfuðið og svo er hægt að halda endalaust áfram, eins og þegar Alþingismenn koma í sjónvarpið og segja fullum fetum að hitt og þetta sé rangt og jafnvel hver upp í annan, er fólk almennt orðið ómarktækt er í lagi að fólk bulli merkingarleysu hvar og hvenær sem er erum við orðin svona dofin að okkur er bara alveg sama, eru engir blaðamenn á Íslandi með metnað, á saksóknari ekki að skoða sum þau ummæli sem látin eru fjúka ss. eins og áburður um mútur?
Þessa daganna ganga ásakannir á víxl millum heilbriggðismálaráðherranna fyrrverandi og núverandi, hvernig væri nú að einhver fari nú með þessa menn saman fyrir framan sjónvarpsvélar inná skrifstofu ráðherra og fái málið á hreint svo þeir geti hætt að tefja fyrir þeim Alþingismönnum sem vilja vinna, eins mætti setja "haltukjafti karmellu" upp í nokkra Alþingismenn Sjáfstæðisflokksins á meðann þau sitja þingfundi í von um að þau hætti þar með að tefja störf Alþingis.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
20.2.2009 | 17:17
"Kommon sko"
Fer ekki best á að Grétar Mar fari bara á kranann í Sandgerði, ég leyfi mér að efast um að hann rati um Suðurland.
Það hlýtur að vera hægt að finna eitthvað betra.
![]() |
Grétar Mar vill leiða listann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.2.2009 | 11:18
Góður
![]() |
Stefnir á þriðja sætið í Suðurkjördæmi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
loathor
-
axelthor
-
baldvinj
-
kaffi
-
virtualdori
-
folkerfifl
-
gebbo
-
neytendatalsmadur
-
stjornarskrain
-
gudni-is
-
sannleikur
-
zumann
-
gunnarggg
-
tudarinn
-
hallgrimurg
-
helena
-
810
-
ringarinn
-
ingabesta
-
jonaa
-
fiski
-
nonniblogg
-
jonvalurjensson
-
kolbrunb
-
ksh
-
krist
-
lindagisla
-
wonderwoman
-
altice
-
korntop
-
noosus
-
magnusthor
-
martasmarta
-
svarthamar
-
framtid
-
sigurdursig
-
siggisig
-
stjornlagathing
-
lehamzdr
-
svanurkari
-
svavarthai
-
tryggvigunnarhansen
-
valdimarjohannesson
-
vincentvega
-
sailor
-
olllifsinsgaedi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.7.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 5
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar