,,Björgunaraðgerðum er lokið og tókust þær vel"

Stór voru orð Jóhönnu Sigurðar á einhverri upphefjunarhátíð Samfylkingarinnar þegar hún hálf hrópaði að björgunaraðgerðum væri lokið og að aðgerðir hafi tekist vel og nú væri uppbyggin hafin og svo heyrði ég í eldhúsdagsumræðunum í gærkvöldi að Steingrímur Joð öskraði, hann er farinn að öskra aftur ég var farinn að sakna þess og vona að það sá vísbending um að kosningar séu framundan, hann öskraði m.a, að svo og svo mörgum íbúðasölusamningum hafi verið þingýst undanfarna mánuði og taldi upp einhverja fjölmiðla sem hafa nú líklega farið að óskum ráðuneytisins og reynt að skrifa umræðuna upp og eins veifaði hann gögnum frá Hagstofu sem getur alveg logið fyrir hann rétt eins og seðlabankinn gerði, enda trúum við öllu sem okkur er sagt, en sölusamningar segja nú lítið ef að það eru svo bara bankar og stofnanir að yfirtaka eignir og eða hrægammar að taka við eignum.

Ég sé bara ekki neinn uppgang en sé aftur á móti að við látum stjórnvöld ljúga að okkur sí og æ, við erum aumingjar með hor og það nota stjórnvöld sér til þess að svívirða þjóð sína.


Til hamingju með daginn sjómenn.

Daginn í dag eiga sjómenn allra tíma.

Forstjóraskipti hjá MATÍS.

Ég skrifaði fyrir nokkru um að ég efaðist um að vísindaakademíunni væri treystandi og hef í framhaldi fylgt þeim pistli eftir og nú er niðurstaðan sú að Sukkarinn Sjöfn Sigurgísladóttir saggði af sér sem forstjóri MATÍS enda sjóðasukkari mikill fyrir utan að MATÍS var farin að taka þátt í verðandi umhverfisslysi sem Sjöfn er að undirbúa.

 


Hvenær verður mengun mengun og er Íslensku akademíunni treystandi til að ganga frjáls?

Ég fór að velta þessu fyrir mér þegar ég heyrði að vísindaakademían er að taka þátt í allskonar vitleysu bara til þess að gera eitthvað því að hún virðist vaða í peningum úr hinum ýmsu sjóðum, þau virðast fá styrk í allan fjandann.

Þessi dægrin tala menn um erfðabreittann Lax og velta fyrir sér hvort að það sé rétt að gera svona, en okkur fjölgar jú mjög hratt og eitthvað þarf að gera til þess að fæða fjöldann, enn ég tel þetta vera mengun og að það er ekki verið að hugsa um fjölda fólks heldur eins og oft áður fjölda peninga.

Núna er erfðabreytt bygg að vaxa vel og fjúka líka um Rangárvelli, en í Gunnarsholti var erfðabreyttu byggi sáð og er vaktað allann sólarhringinn, ég tel að þetta sé mengun þ.e. sáning erfðabreytts byggs, þetta er meira en kynbætur.

Núna standa Matís og Hrunamannahreppur fyrir því að fá að flytja inn í landið Tilapiu og ætla ala hana á Flúðum en draumur þeirra er að Tilapíu verði dreyft um allt land og þó svo að ég telji Þorskinn ekki hvítfisk framtíðarinnar þá tel ég þessa framkvæd vera mengun.

Tilapia er hvítfiskur sem alinn er í Asíu í tjörnum upphituðum af sólinni og hann fóðraður með afgöngum eins og hænsnaskít t.d. og í hann kasta fóðrinu fólk með nánast engin laun og honum er slátrað við aðstæður sem ekkert kosta og unninn af fólki sem fær ekki mikil laun, Tilapian þolir ekki hita undir 20°c. en kjörhiti hennar er um 25°c til 35°c.

Vísindafólk Íslands og sveitastjórn Hrunamannahrepps ætla að flytja inn fisk sem ekki á heima í Íslenskri náttúru og ætlar svo að keppa við "hræódýrann" fiskinn frá Asíu, markaðsverð í dag í evrópu er um 8 evrur kílóið af Premium flökum þ.e. þá erum við að tala um stjörnuflokks flök sem eru um 35% af fiskinum ef vel tekst til með flökunina, Tilapian vex vel í um 30°c hún er um það bil 10 til 12 mánuði að verða sláturfiskur og er þá um 1 kíló og fara um 350 gramma flök á 420 kr ísl. flakið, á markað við hliðina á hágæða vörum frá Íslandi þar sem menn eru að hamast við að halda uppi "standart"og verðum, en í samkeppni við vörur sem koma frá löndum sem framleiða þennan fisk fyrir nánast ekkert.Bleikjan er 12 til 14 mánuði í kílóið og nítingin er um 55% , 60% ef vel tekst til og verðin eru um 12 Evrur á mörkuðum í evrópu, en segjum að við slátrum 800 gramma Bleikju sem er algengt á Evrópu og er þá um 10 mánaða gömul og 55% nýting þá fer svipað flak á 990 krónur Ísl. flakið, hvort tveggja komið á markað í Frankfurt.

Skilaverð fyrir kílóið af bleikjuflökum í dag er um 1500 krónur.

Skilaverð fyrir kílóið af tilapiuflökum gætu verið í dag um 1250 krónur.

Kostnaður við flökun Tilpapíu er meiri en flökun Bleikju en ekki er vitað um eldiskostnað Tilapíu á Íslandi en ekkert bendir til að hann sé lægri en Bleikju, skilaverð á kíólið af Tilapiuflökum þyrfti að vera á um 1800 kr. ísl. til þess að þetta væri réttlætannlegt.

Við gátum ekki alið Lax sem þarf nú ekki nema 12°c en vísindakademian ætlar að ala fisk sem kostar ekkert að ala annarstaðar og á alls ekki heima í Íslenskri flóru, hingað var fluttur minkur á sínum tíma sem ekki átti að geta sloppið og eða lifað í Íslenskri náttúru og einnig var fluttur til landsins Regnbogasilungur sem ekki átti að sleppa og eða geta lifað við Íslenskar aðstæður hann lifir nú bara góðu lífi í villtri náttúru.

Ástæðan fyrir því að við ölum ekki Urriða eða Regnbogasilung sem er mjög auðveldur og ódýr í eldi, er að verðin í Evrópu eru lægri en við getum keppt við en forstjóri Matís með alla sína styrki ætlar að flytja inn og reyna að framleiða hræódýrann fisk og flytja út á hræódýrann markað með ærnum kostnaði og setja Íslenska fánann á og að öllum líkindum verðfella þá matvöru sem er verið að hamast við að selja á háum verðum, vegna þess og vegna hins sem að Íslenski fáninn stendur fyrir.

Ég hefði viljað sjá þessar milljónir sem fara sem styrkir í þessa vitleysu, fara í að gera tilraunir með flutningsaðferðir á Bleikju og öðrum matvælum þ.e. að reyna að finna möguleika á því að flytja þær vörur á erlenda markaði sjóleiðis með sem minnstum röskunum á gæðum vörunnar, því að eitt af stærstu vandamálum við útflutning er hvað flutningskostnaður er hár.


Allt bara mjög eðlilegt

Mér finnst það mjög eðlilegt að áhöfnin bjóði forsætisráðherra að ganga frá borði þarna, dagskrá ráðherra er örugglega mjög stíf og alveg gat eitthvað leigið á borði hennar sem lá á og ekki ástæða til að forsætisráðherra neins lands sé að fara í loftið og lenda oftar en þarf, en þó svo að aðstoðarmaður hennar hafi líka verið um borð hafa vafalaust einhverjir staðgenglar verið til staðar.

Það er líka bara mjög eðlilegt að forsætisráðherra afþakki þetta boð ef ekkert sérstakt rekur hana til annars, svo þetta er nú varla eitthvað til velta sér upp úr, en ég er búinn að svo ég ýti á enter.

Svona einhvernvegin snýr þetta í hausinum á mér.


mbl.is Hafnaði boði um forgang
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú,

mér hefur skilist að ESB sé svo gott bandala góðra gæja að það þurfi ekkert svona plagg og jafnvel að við fengjum svo mjúka yfirhalningu að það þyrfti ekki að ræða svona sérkjör, en ég hef líka haldið því Fram að svona yrði þetta gert og undir það verður skrifað en og að það gildir í fimm ár kannski tíu.
mbl.is Tryggi forræði yfir auðlindum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig verður það?

Það verður einhvern veginn svona ,, Ætlið ÞIÐ krakkar að sjá til þess að ÉG missi ráðherrastólinn og að ÉG komist jafnvel aldrei aftur á þing, Ætlið ÞIÐ að sjá til þess að Sjálfstæðisflokkurinn komist hér aftur við völd og geri okkur valdalaus, Ætlið ÞIÐ að sjá til þess að okkar fólk fái ekki neina byttlinga framar, Ætlið ÞIÐ að sjá til þess að á þessum víðsárverðu tímum verði efnt til kosninga.

Það verðu ekki spurt ætlum VIÐ að hugsa um heill þjóðarinnar eða ætlum VIÐ að láta þetta sukk halda áfram sem verið hefur við lýði í áratugi á hinu háa Alþingi og eða í allri stjórsýslunni eða ætlum VIÐ að halda áfram að styðja þöggunina sem er viðhöfð eða ætlum VIÐ að stunda þær lygar sem stundaðar hafa verið við þjóðina áratugum saman og ríkisstjórnum saman eða ætlum VIÐ að snú við blaðinu og standa með stefnu okkar og ganga út úrþessari ríkisstjórn og standa eða falla í kosningum um okkar málefni.

Hvort verður það, ég held að "Ragnar Reykás" muni koma með yfirlýsingu í lok funanna í dag.


mbl.is Þingflokkur VG á fundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Högni Jóhann Sigurjónsson
Högni Jóhann Sigurjónsson
Ég segi bara eins og mér finnst, en áskil mér rétt til að skipta um skoðun þegar mér lærist það. hjs@simnet.is
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (1.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 37
  • Frá upphafi: 82250

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 37
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband