Hefðapólitík er gengin sér til húðar, breytinga er þörf.

Á meðan hefðapólitík á að ráða ferð getur ástandið ekki annað en versnað, frá því fyrir fall er hluti núverandi ríkisstjórnar búin að vera að toga stýrið til hægri eftir hefðum fyrir auðvaldið og síðar eða eftir kosningar kom Steingrímur Joð svo með hluta af VG og togar til vinstri, aðrir VGliðar eru að fara af festingunum vegna aulagangs þau vita ekki hvað þau eiga að gera því að hefðir eru brostnar.

Ég sé þau fyrir mér sem farþega í rútu sem hafði ekki upp brekkuna, líklega vegna þess hve líkið í lestinni er þungt og þó svo að flestir nýrri og betri bílar séu sjálfskiptir þá er þessi það ekki því að samkvæmt hefðinni var fenginn gamall bíll og gamall bílstjóri og ástandið er sum sé þannig að hún hefur misst hann á milli gíra og húrrar aftur á bak niður brekkuna og það eina sem farþegunum  dettur í hug er að stökkva nú öll á stýrið og Steingrímur ásamt fámennu liði VG, þ.e. þeim sem þorðu með eða þorðu ekki annað en að fara með því að gott embætti gæti legið á lausu, toga í stýrið til vinstri í átt til bótakerfis kommunismanns og Jóhanna með þeim aulum sem henni fylgdu toga í stýrið til hægri í átt að auðvaldinu, framsóknarmenn og sjálfstæðismenn hrópa svo aftan úr bíl og rembast viðað segja þeim til og hrópa þá gjarnan ,,nei í hina áttina, í þessum 60 manna bíl er enginn einstaklingur sem veit hvar eða til hvers bremsurnar eru og þessvegna stígur engin á þann petala, á meðan húrrar rútan aftur á bak hraðar og hraðar og af hefð getur ferðin ekki endað öðruvísi en með ósköpum - nógu ílla fór hún af stað.

Þjóðin - skrýllinn, er gjörsamlega meðvitaður um hvað hann er lítils virði nema fyrir kosningar er svo gjörsamlega í lausu lofti af stefnuleysi og ákvarðannafælni og á meðan hlær hópurinn í rútunni af okkur og heldur áfram að toga stýrið í átt til sinna vina og vandamanna.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Lísa Björk Ingólfsdóttir

Jæja Högni minn - ég er nú eiginlega bara tilbúin til að stöðva þessa rútu og stíga á bremsuna og heimta að allir hypji sig út......... utan fáeinna útvaldra.

Lísa Björk Ingólfsdóttir, 8.6.2010 kl. 23:02

2 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Skemmtilega skrifað og myndrænt, algjörlega sammála þér Högni minn

Ásdís Sigurðardóttir, 9.6.2010 kl. 13:26

3 identicon

Heill og sæll Högni; líka sem og, Lísa og Ásdís !

Getur vart; verið raunsærri lýsing, á þessum óhella rútuferðarlöngum, ykkur; að segja.

Með beztu kveðjum; sem áður og fyrri /

Óskar Helgi Helgason 

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 11.6.2010 kl. 02:03

4 Smámynd: Halldór Egill Guðnason

Núverandi ríkisstjórn er eins og Ólafur Ketilsson á rútunni til Laugavatns. Með snæri á báðum fótum og stafina hangandi sitt hvoru megin við sig. Sviptur ökuleyfinu, en ók samt. Eftir að hafa fárast yfir þokunni útifyrir og ömurlegum akstursskilyrðum, um langan veg, lofaði hann loks betra skyggni, eftir að einhver laumaðist til að setja miðstöðina á og með því fjarlægja móðuna INNAN á gluggunum. Þegar loks náðist að lenda rútugarminum á Laugarvatni klöppuðu allir. Ekki yfir snilli bílstjórans, heldur hinu, að hafa lifað af ferðina, undir skelfilegri handleiðslu og enn verra akstrurslagi. Ólafur hrósaði hins vega ávallt sigri, sem "ómissandi" bílstjóri. Má vera að samlíkingin sé óviðeigandi, en frá mínum bæjardyrum séð er núverandi stjórn óþægilega lík Ólafi Ketilssyni. Blessuð sé minning hans.

Halldór Egill Guðnason, 18.6.2010 kl. 03:18

5 Smámynd: Högni Jóhann Sigurjónsson

Óli Ket var engum líkur, ég tek undir þetta hjá þér Halldór.

Högni Jóhann Sigurjónsson, 18.6.2010 kl. 22:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Högni Jóhann Sigurjónsson
Högni Jóhann Sigurjónsson
Ég segi bara eins og mér finnst, en áskil mér rétt til að skipta um skoðun þegar mér lærist það. hjs@simnet.is
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 82296

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 13
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband