28.7.2009 | 10:56
Veiðimálastofnun já
Ég ætla ekki að hafa skoðun á því hvort að 12 fiska kvóti sé mikið eða lítið en menn eiga að skrá aflann það skiptir máli, við stofnavernd annarsvegar og svo hinsvegar þar sem sleppingar halda uppi veiðinni að uppgefnar aflatölur séu réttar svo hægt sé að vinna eftir þeim.
En hvað varðar Veiðimálastofnun þá tel ég hana vera vanhæfa til að gefa umsagnir hverskonar um veiði í laxveiðiám þar sem hún er þáttakandi eða í það minnsta áhorfandi að "laxastofnavernd" þeirra Laxeyrar og Lax-ár manna, en þeir hafa undan farin ár gjörsamlega nauðgað Íslenskum laxveiðiám með "sinni stofnavernd".
Sem dæmi má nefna að til voru í mesta lagi 35.000 gönguseiði til að sleppa í Tungufljót í Biskupstungum árið 2007, sem voru undan foreldrum úr Tungufljóti, en í Tungufljót fóru samt 75.000 gönguseiði árið 2007, stofnavernd? Maður spyr sig.
Þetta er stofnavernd þeirra Laxeyrar og Lax-ár manna og er unnin án afskipta veiðimálastofunnar sem veit þó allt um málið því að svo er hún innvinnkluð í fiskeldisstöðvarnar í Borgarfirði, óháð stofnun? Maður spyr sig..
![]() |
Virða ekki veiðikvóta í Fáskrúð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.7.2009 | 23:28
Nei nei, bara stundum.....
![]() |
Reglurnar eigi ekki alltaf við |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
26.7.2009 | 16:18
Er verið að breyta til að geta breytt aftur?
![]() |
Blátt bann við akstri og áfengisneyslu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
25.7.2009 | 16:29
Nágranninn........................
Mér var send þessi vísa og finnst hún frábær. höfundur er ókunnur og ég tek mér það bessaleyfi að setja hana hér því að það verða sem flestir að fá að njóta.
2007
Ég á minnsta húsið í götunni,
húsið sem stendur hjá Lödunni.
Þegar granninn rennir í pottinn hjá sér-
kólna allir ofnarnir hjá mér.
Eftir að granninn gerði upp garðinn hjá sér
skín ekki sólin lengur í garðinn hjá mér.
Granninn fær ráðherrana í grillið til sín
og bræluna leggur svo yfir til mín.
Granninn á jeppa af flottustu sort,
en ég á bara ljóta Lödu Sport.
Ég fer í vinnuna með rútunni,
en hann með einkaþyrlunni.
2008
Konan hans eldist ekki hætings hót,
en mín er alltaf bæði feit og ljót.
Granninn er stæltur og með hárið ljóst,
En ég er bæði með ístru og lafandi brjóst.
Þegar granninn er með veislu hjá sér,
býður hann öllum, öllum - nema mér.
Elton John skemmti lýðnum í afmælinu,
en ég hafði bara efni á Breiðbandinu.
Óþolandi er oft, vel stæði granninn minn,
Það trúa því fáir, að hann sé sonur minn.
2009
Nú er hann kominn á heimilið mitt
og fluttur í gamla herbergið sitt.
Í kreppunni hann missti allt sitt fé.
Og nú á hann minni pening en ég.
Það kviknaði í báðum jeppunum,
og konan er farin frá honum.
Nú hangir hann heima rosa down,
og bölvar og ragnar Gordon Brown.
Höf. óþekktur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
21.7.2009 | 22:52
Ögmundur!!!!!!!!!!
Þetta er ekki svona einfallt, það er ekki dauði og djöfull þó svo að við samþykkjum ekki þessi samningsdrög, auðvitað verður sest niður aftur.
Hefur ekkert af þessu fólki sem er að reyna að gera eitthvað gagn á Alþingi lennt í fjárhagshremmingum, hvurslags er þetta eiginlega?
Það hefði verið hægt að ganga frá þessum samningum á viku allt sem þurfti var að senda mann sem hefur staðið á "bjargbrúninni" og þorað að standa þar og semja sig frá brúninni.
![]() |
Ögmundur: Hugsum um þjóðarhag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
21.7.2009 | 15:46
Ólíðandi ástand.
Ég horfði einmitt uppá lögreglubílana hér í Rangárvallasýslu fyrir helgina þar sem þeir voru einmenntir og stuttu síðar sá ég annan þeirra í forgangsakstri, þetta er bæði óþolandi vinnu umhverfi lögreglumanna og ólíðandi þjónustugeta.
Enn ég velti nú samt fyrir mér hvort að ökunýðingur sá sem myndin hér með þessari frétt bendir á hefði stoppað fyrr hefðu tíu bílar elt hann og jafnvel fjögur hjól, mér finnst nú eins og menn hafi mist sig í lögguleik að 6 bílar skuli elta hann og svo tvö hjól í viðbót, þanneiginn að í mínum huga vantar nú eitthvað uppá skipulag líka, sem svo aftur ræðst auðvitað að einhverju leiti af peningum eða öllu heldur peningaleysi. Hvað ætli margir hefðu elt hefðu verið nógir peningar?
![]() |
Bágborin staða lögreglunnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 15:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.7.2009 | 10:49
Í áföngum?
Bílprófsaldur hækkaður um eitt ár á fimm árum í áföngum, já já ókey.
Það eru fullt af vegum þar sem er 90 km. hámarkshraði á klukkustund en mætti fara í 80 km. á klukkustund, eða nánast allir vegir aðrir en þjóðvegur 1 að hluta.
Hámarkshraði á Suðurlandsvegi, þjóðvegi 1 millum Hveragerðis og Selfoss má alveg hiklasut lækka niður í 80 km á klukkustund og viðurlög máttu fyrir löngu vera orðin harðari og eftirlit meira.
![]() |
Bílprófsaldur hækkaður í 18 ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
18.7.2009 | 16:51
,,Eldra whisky, betri bíla og yngri konur,,
![]() |
|
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
7.7.2009 | 18:27
Gjafavara
![]() |
Engin eftirspurn eftir Owen-treyjum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
6.7.2009 | 12:25
Jæja góðir Íslendingar
Er ekki kominn tími til að hætta að agnúast hvert útí annað varðandi bankahrunið og fara að snúa saman bökum, á meðan við eltum ólar við hver beri ábyrgð og kítum um fréttir þar sem þeir Davíð Oddson og Steingrímur Joð skjóta hvor á annan af barnaskap mikklum, vitandi að það ber enginn einn ábyrgð á þessu ástandi, eyðum við orku í að takast á um hluti sem skipta ekki máli lengur.
Það sem skiptir máli í dag er að Icesave málið verði fellt og ríkisstjórnin fari sem fyrst frá og að mynduð verði þjóðstjórn sem klárar Icesave málið, sem er jú bara uppkast með fyrirvara um að Alþingi samþykki það og ný samninganefnd verði skipuð og mönnuð á allt annan hátt, það er auðvitað bara bull að Enskir og Hollenskir vilji ekki setjast niður að nýju.
Í þessu samhengi er gott að hafa í huga að í genum Englendinga, Hollendinga o Þjóðverja er "nýlenduvírus" og hann stjórnar þeim soldið mikið, þessi vírus stefnir og hefur alltaf stefnt að heimsyfirráðum og þegar þessar þjóðir setjast að samningaborðum við aðrar þjóðir stjórnast þeir af þessum vírusi og þá er ekki von á góðu þegar við sendum afdankaða pólitíkusa til funda við þá sem eru með ein og einungis ein skilaboð í farteskinu, þ.e. ekki styggja ESB.
Og ekki má gleyma að það var galli í regluverki EES samningsinns sem svo aftur "útrásavíkingarnir" notfærðu sér og því bera í raun fleyri en Íslenska ríkið ábyrgð á þessu máli og það jafnvel mun meiri ábyrgð.
Guð blessi Ísland.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
loathor
-
axelthor
-
baldvinj
-
kaffi
-
virtualdori
-
folkerfifl
-
gebbo
-
neytendatalsmadur
-
stjornarskrain
-
gudni-is
-
sannleikur
-
zumann
-
gunnarggg
-
tudarinn
-
hallgrimurg
-
helena
-
810
-
ringarinn
-
ingabesta
-
jonaa
-
fiski
-
nonniblogg
-
jonvalurjensson
-
kolbrunb
-
ksh
-
krist
-
lindagisla
-
wonderwoman
-
altice
-
korntop
-
noosus
-
magnusthor
-
martasmarta
-
svarthamar
-
framtid
-
sigurdursig
-
siggisig
-
stjornlagathing
-
lehamzdr
-
svanurkari
-
svavarthai
-
tryggvigunnarhansen
-
valdimarjohannesson
-
vincentvega
-
sailor
-
olllifsinsgaedi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.10.): 4
- Sl. sólarhring: 4
- Sl. viku: 8
- Frá upphafi: 82566
Annað
- Innlit í dag: 4
- Innlit sl. viku: 7
- Gestir í dag: 4
- IP-tölur í dag: 3
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar