Betra seint en ekki?

Jæja eru þeir þá búnir að koma sínu undann, vinirnir og málin að fyrnast?

Það verður ekki auðvelt að finna gullið og aðra verðmæta hluti sem þeir eru búnir að koma peningunum í.


mbl.is Höfða einkamál gegn hrunfólkinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er mikið í lagi

Þau eru nýbúin að vera heima í kjördæmum sínum að spjalla við kjósendur sína og bara mikið í lagi að þau sé þarna, en daglegur vinnutími finnst mér nálgast mannréttindabrot og ekki til þess fallinn að skynsamleg niðurstaða geti fengist úr viðfangsefnum þingsinns.
mbl.is Lengsta sumarþing í 90 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÁFRAM ÍSLAND

Ég er mjög spenntur fyrir þessu móti, þær eiga eftir að standa sig frábærlega.
mbl.is EM: Pressan að heiman hjálpar til
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég þekki mann...............

........sem er um þrítugt hann er í mjög góðu formi, hann stundar íþróttir eins og hann hefur tíma til fótbolta, sund, badminton og lyftingar og fleyri greinar hef ég heyrt nefndar þar á heimili, hann er í mjög góðu andlegu jafnvægi á konu og þrjú börn og þar á heimili er mikill kærleikur og mikil ást þau skulda ekkert nema íbúðarlán af íbúð sem er passlega stór fyrir þau og ekkert vandamál með það og heldur ekki vandamál með bílalán, bíllinn þeirra er sjö ára gömul Toyota og því engar bilanir, svo þessi maður er að öllu jöfnu í óskaplega góðu skapi og mjög jákvæður til allra verka og tillitsamur úr hófi Fram, þessi maður starfar sem flutningabílstjóri, n.b. hann ekur SCANIA 580 með öllum nýjustu tækjum og græjum sem auðvelda honum aksturinn, enn hann má ekki keyra í einum rykk úr Reykjavík og á Egilsstaði/Akureyri/Ísafjörð eða hvert á land sem honum bíðst túr sé hann lengur að keyra þangað en svona ca. fimm sex tíma.

Niður á Alþingi Íslendinga eru 63 misgáfaðir þingmenn í mjög misjöfnu ástandi að reyna að stýra landinu, sem þeim gengur hreint ekki neitt, þau vinna samt næstum allann sólarhringinn og hafa gert það núna í nokkrar vikur.

Er þrælahald ekki bannað hér á landi, gilda vinnureglur ekki um alla vinnandi menn, er ekki kominn tími til að kæra forseta Alþingis fyrir andlegt ofbeldi á vinnustað og eða misnotkun á veikburða fólki sem veit orðið hvorki í þennan heim eða annan og vissu þau mörg lítið fyrir?

http://baldvinj.blog.is/blog/baldvinj/entry/935388/


Það er svo margt.....

sem ég skil ekki og eitt af því er, afhverju takast Íslenskir þingmenn á um Icesave málið, afhverju eru SF og VG að reyna að koma málinu í gegn á þeim forsendum einum saman að það liggur á, það er eins og ríkisstjórninni sé sama hvað málið kostar og svo hitt, eru stjórnarandstæðingar að þvæla málið eingöngu til að reyna að fella ríkisstjórnina eða þykir þeim það skipta meira máli að það sé skrifað undir samning sem getur staðið og svo ekki síst, þetta er ekki stjórnarfrumvarp, að ég held, svo afhverju ætti ríkisstjórnin að springa ef ekki tekst að gera ömurlegann samning við Englendinga og Hollendinga og það á "nýju drengjameti".
mbl.is Kolröng söguskýring
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mætingar þingmanna

Er stimpilklukka í þinghúsinu, er hægt að sjá mætingar "sumra" þingamanna bæði á nefndarfundi og í þingsal er eitthvert eftirlit með því hvað þingmenn eru að gera þegar þeir eru ekki sjánlegir í miðbæ Reykjavíkur og þá hvorki utann hús né innan á sama tíma og hinir þingmennirnir eru á fundum hvort heldur það eru þingfundir eða nefndarfundir?

Ef ég læt þingmann hafa skjöl sem eiga erindi inn á nefndarfund, hvað get ég gert til vera vissum að sá ágæti þingmaður mæti á umræddann fund og eða að hann afhendi skjölin réttum aðilum?

Eitt af því sem Þráinn Bertelsson á að gera sem mundi hjálpa sáttanefdinni, hugsiði ykkur 6 manna sáttanefnd á að snúa þau Birgittu, Margréti og Þór niður jæja er að hann á að gera sem allra mest af því að þeygja.


mbl.is „Fyrr frýs í víti en ég skipti um flokk“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Börn í hjólhýsum

Ég horfði á fólk stoppa á bensínstöð um helgina þau voru með hjólhýsi í eftirdragi og í hjólhýsinu voru börn.
mbl.is Jeppi eyðilagðist og hjólhýsi splundraðist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Talandi um traust

Núverandi ríkisstjórn telur að traust vinnist eða í það minnsta haldist ef að þau gera ekki neitt annað en að komast inní ESB og þangað til að segja já við öllu, þó að svarið ætti að vera nei ef þau bara hefðu skilið spurninguna.

Það átti auðvitað og þetta er ekki að vera vitur eftir á, að mynda þjóðstjórn strax í haust helst utanþingsstjórn og hefja stórfellda rannsókn með aðstoð Englendinga, Hollendinga og þjóðverja og allir nauðasamningar áttu að bíða á meðan sú rannsókn væri í gangi og á meðan væru hópar frá sömu ríkjum að við bættum hópi frá hlutlausu ríki að vera að vinna í því hvað væri hvers að greiða og hvernig hægt væri að koma því við á kurteysislegann hátt.

En nú er ríkisstjórnin endanlega búin að klúðra málunum og verður talin hafa verið að fela eitthvað og ætlað að komast upp með að greiða ekki eitthvað.


mbl.is Rannsaka íslensku bankana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Höfundur

Högni Jóhann Sigurjónsson
Högni Jóhann Sigurjónsson
Ég segi bara eins og mér finnst, en áskil mér rétt til að skipta um skoðun þegar mér lærist það. hjs@simnet.is
Ágúst 2009
S M Þ M F F L
            1
2 3 4 5 6 7 8
9 10 11 12 13 14 15
16 17 18 19 20 21 22
23 24 25 26 27 28 29
30 31          

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (7.10.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband