ókey..................................

hver er munurinn, hvort tveggja gengur út á að geta sem allra fyrst rekið þingmennina?
mbl.is Skrifi undir heit en ekki eið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég óska þeim velfarnaðar.

En þetta er nú hópurinn sem stóð fyrir látunum svo ég á nú ekki von á langlífi þessarar stjórnar eða flokksins, en vonandi sjá þau að sér núna og vonandi höndla þau þetta vel núna og að framtíðin sé þeirra, en hvað mig varðar vona ég þinghópurinn segi sig frá flokknum og fari þar með að fá vinnufrið.
mbl.is Harma deilur í Borgarahreyfingunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Borgarahreyfingin sem grasrótarafl

Við undirrituð teljum að meðfylgjandi tillögur að samþykktum fyrir Borgarahreyfinguna
muni tryggja að hreyfingin starfi áfram á þeim grunni sem að hún lagði af stað með,
að hún sé hreyfing en ekki stjórnmálaflokkur.
Við teljum að þessar grasrótarsamþykktir muni tryggja að svo verði, meðan að tillögur
að þeim flokksamþykktum, sem einnig hafa verið lagðar fram, geri hreyfinguna að
tiltölulega hefðbundnum stjórnmálaflokki.”

Baldvin Björgvinsson
Baldvin Jónsson
Birgitta Jónsdóttir
Daði Ingólfsson
Gunnar Waage
Högni Sigurjónsson
Jóhann Ágúst Hansen
Katrín Snæhólm
Lísa Björk Ingólfsdóttir
Margrét Rósa Sigurðardóttir
Margrét Tryggvadóttir
Rakel Sigurgeirsdóttir
Sigurlaug  Ragnarsdóttir
Þór Saari

1

Samþykktir Borgarahreyfingarinnar

Félagið heitir Borgarahreyfingin og er starfsvæði þess Ísland. Heimili Borgarahreyfingarinnar og

varnarþing er í Reykjavík.Borgarahreyfingin skal lúta lögum nr. 162/2006 um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjó

ðenda og

um upplýsingaskyldu þeirra. Öll fjármál hreyfingarinnar skulu vera opinber og aðgengileg almenningi.

Markmið

1. Markmið Borgarahreyfingarinnar er að koma málefnum fyrirliggjandi stefnuskráar sinnar í

framkvæmd og hún skal leggja sig niður og hætta störfum þegar markmiðunum hefur verið ð eðaaugljóst er a

ð þeim verði ekki náð. Þessari grein má einungis breyta með einróma samþykki

landsfundar.

2. Aukamarkmi
ð hreyfingarinnar er að hjálpa grasrótarhreyfingum á Íslandi að koma sínum

sjónarmiðum á framfæri.

3. Hreyfingin býður fram til alþingiskosninga til að ná fram markmiðum sínum.

Skipulag

Framkvæmdastjóri

1. Þegar fjárráð leyfa skal hreyfingin ráða framkvæmdastjóra. Verksvið hans verður:

að starfa með grasrótarhreyfingum á Íslandi og hjálpa þeim að koma boðskap sínum á

framfæri:

o við þingmenn Borgarahreyfingarinnar.

o við þingmenn annarra stjórnmálaafla.

o við aðra grasrótarhópa.

o við stofnanir og fyrirtæki eftir því sem þurfa þykir.

o við almenning í gegnum fjölmiðla og rafræna miðla.

að auðvelda grasrótarhópum starfsemi sína með því að útvega fundaraðstöðu og annað sem

þarf og er á færi hreyfingarinnar auk þess að miðla reynslu annarra hópa

að halda utan um hópa sem vilja starfa fyrir hreyfinguna á einn eða annan hátt

að sjá um fjármál hreyfingarinnar, bæði uppgjör og áætlanir

að skipuleggja atburði sem tengjast stefnumálum hreyfingarinnar s.s:

o auglýsa eftir framboðum á vegum hreyfingarinnar til nýrra alþingiskosninga ef þurfa

þykir.

o skipuleggja árlegan opinn landsfund hreyfingarinnar.

o aðrir atburðir.

2. Framkvæmdastjóri skal ráðinn á faglegum forsendum ofannefndrar verksviðslýsingar af einni af

þremur stærstu ráðningarstofum landsins hverju sinni er best býður í verkið. Önnur ráðningastofa eða

fagaðili skal meta störf framkvæmdastjóra á hálfs árs fresti eða þegar stjórn hreyfingarinnar óskar

sérstaklega eftir því.


Tilkynning um framboð.

Ég undirritaður býð mig fram í stjórn Borgarahreyfingarinnar og skora um leið á alla þá félaga sem áhuga hafa á því að grasrótarhreyfing verði áfram pólitískt afl á Íslandi að bjóða sig fram og hafa áhrif. Ég hef trú á því að Borgarahreyfingin geti verið það afl sem hún stefndi að, það varð misskilningur á misskilning ofan í viðbót við reynsluleysi. Það blandaðist svo við spennufall eftir gríðarlega mikla vinnu í aðdraganda kosninganna í vor sem fyrst og fremst olli því að ósætti varð í forystu Borgarahreyfingarinnar að mínu mati. Framundann er landsfundur þann 12. september n.k. og þar verður tekist á um það hvort að Borgarahreyfingunni verði breytt í hefðbundinn stjórnmálaflokk með boðum og bönnum í viðbót við skrýtnar venjur eins og upptökur samtala við öll hentug tækifæri, en þetta boðar svokallaður 12 manna hópur, eða hvort það verði látið á það reyna hvort að grasrótarhreyfing geti starfað sem pólitískt afl á Íslandi. Mér hugnast ekki að Borgarahreyfingunni verði breytt í hefðbundinn pólitískan flokk og vil leggja mitt að mörkum til að Borgarahreyfingin verði áfram grasrótarhreyfing og að við tökum okkur í það minnsta eitt ár í að láta reyna á það. Kjósum einstaklinga í stjórn hreyfingarinnar sem ekki hafa verið viðloðandi stjórn hreyfingarinnar leynt eða ljóst hingað til. Eitt af helstu stefnumálum Borgarahreyfingarinnar er að kjósa einstaklinga en ekki flokka, sem 12 manna hópurinn er. Ég hef mætt á nokkra fundi Borgarahreyfingarinnar og fylgst með þróun leiðindanna og tel að það sé enn hægt að snúa til baka og koma okkur á “rétta” braut og ég vil fá að taka þátt í því.

    Ég er bara venjulegur maður úr þjóðlífinu, á fjögur uppkomin börn og þrjú barnabörn og hef komið að félagsstarfi í gegnum íþróttir barnanna minna. Ég hef unnið sem vélamaður, trailerbílstjóri, í vélsmiðjum, á smurstöð, verið með verkstjórn 20 manna hóps í verksmiðju og unnið við fiskeldi. Ég útskrifaðist sem fiskeldisfræðingur frá Háskólanum á Hólum 2005 og rek litla fiskeldisstöð. Ég þekki umhverfi og aðstöðu barnafjölskyldna og svo lítilla fyrirtækja ágætlega og vil reyna að leggja mitt að mörkum til að þingmenn Borgarahreyfingarinnar geti unnið að lausnum vandamála heimilanna og atvinnulífsins með öflugt bakland sem gerir ríkar og heilbrigðar kröfur til þeirra á móti. Ég mun leggja áherslu á að landsbyggðin sé fullgild inni í öllum þeim ákvarðannatökum sem teknar verða þar sem ég get því viðkomið.

Högni Jóhann Sigurjónsson

Fiskeldisfræðingur

Suðurkjördæmi


72 kílómetrar.........................

..............Þetta er frábært fyrir utan hvað öryggið eykst á þessari leið við þetta.
mbl.is Bundið slitlag frá Ísafirði til Reykjavíkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Betra seint en ekki?

Jæja eru þeir þá búnir að koma sínu undann, vinirnir og málin að fyrnast?

Það verður ekki auðvelt að finna gullið og aðra verðmæta hluti sem þeir eru búnir að koma peningunum í.


mbl.is Höfða einkamál gegn hrunfólkinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er mikið í lagi

Þau eru nýbúin að vera heima í kjördæmum sínum að spjalla við kjósendur sína og bara mikið í lagi að þau sé þarna, en daglegur vinnutími finnst mér nálgast mannréttindabrot og ekki til þess fallinn að skynsamleg niðurstaða geti fengist úr viðfangsefnum þingsinns.
mbl.is Lengsta sumarþing í 90 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ÁFRAM ÍSLAND

Ég er mjög spenntur fyrir þessu móti, þær eiga eftir að standa sig frábærlega.
mbl.is EM: Pressan að heiman hjálpar til
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég þekki mann...............

........sem er um þrítugt hann er í mjög góðu formi, hann stundar íþróttir eins og hann hefur tíma til fótbolta, sund, badminton og lyftingar og fleyri greinar hef ég heyrt nefndar þar á heimili, hann er í mjög góðu andlegu jafnvægi á konu og þrjú börn og þar á heimili er mikill kærleikur og mikil ást þau skulda ekkert nema íbúðarlán af íbúð sem er passlega stór fyrir þau og ekkert vandamál með það og heldur ekki vandamál með bílalán, bíllinn þeirra er sjö ára gömul Toyota og því engar bilanir, svo þessi maður er að öllu jöfnu í óskaplega góðu skapi og mjög jákvæður til allra verka og tillitsamur úr hófi Fram, þessi maður starfar sem flutningabílstjóri, n.b. hann ekur SCANIA 580 með öllum nýjustu tækjum og græjum sem auðvelda honum aksturinn, enn hann má ekki keyra í einum rykk úr Reykjavík og á Egilsstaði/Akureyri/Ísafjörð eða hvert á land sem honum bíðst túr sé hann lengur að keyra þangað en svona ca. fimm sex tíma.

Niður á Alþingi Íslendinga eru 63 misgáfaðir þingmenn í mjög misjöfnu ástandi að reyna að stýra landinu, sem þeim gengur hreint ekki neitt, þau vinna samt næstum allann sólarhringinn og hafa gert það núna í nokkrar vikur.

Er þrælahald ekki bannað hér á landi, gilda vinnureglur ekki um alla vinnandi menn, er ekki kominn tími til að kæra forseta Alþingis fyrir andlegt ofbeldi á vinnustað og eða misnotkun á veikburða fólki sem veit orðið hvorki í þennan heim eða annan og vissu þau mörg lítið fyrir?

http://baldvinj.blog.is/blog/baldvinj/entry/935388/


Það er svo margt.....

sem ég skil ekki og eitt af því er, afhverju takast Íslenskir þingmenn á um Icesave málið, afhverju eru SF og VG að reyna að koma málinu í gegn á þeim forsendum einum saman að það liggur á, það er eins og ríkisstjórninni sé sama hvað málið kostar og svo hitt, eru stjórnarandstæðingar að þvæla málið eingöngu til að reyna að fella ríkisstjórnina eða þykir þeim það skipta meira máli að það sé skrifað undir samning sem getur staðið og svo ekki síst, þetta er ekki stjórnarfrumvarp, að ég held, svo afhverju ætti ríkisstjórnin að springa ef ekki tekst að gera ömurlegann samning við Englendinga og Hollendinga og það á "nýju drengjameti".
mbl.is Kolröng söguskýring
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Höfundur

Högni Jóhann Sigurjónsson
Högni Jóhann Sigurjónsson
Ég segi bara eins og mér finnst, en áskil mér rétt til að skipta um skoðun þegar mér lærist það. hjs@simnet.is
Júlí 2025
S M Þ M F F L
    1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31    

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.7.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 5
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband